top of page
Anchor 1

Um SÍM 

2014-09-30-13.01.12.jpg
P6180590.jpg
Hafnarstraeti.jpeg

SÍM heldur úti yfir 140 vinnustofum á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. SÍM rekur einnig þrjár gestavinnustofur tvær á íslandi og eina í Berlín.

2014-09-30-13.01.12.jpg

SÍM aðstoðar félagsmenn í faglegum málum vegna höfundarréttar, vsk, trygginga, fluttinga, tollamála, sýningahald og lögfræðileg atriði. Öll aðstoð sem veitt er er endurgjaldslaus.

P6180590.jpg

Skrifstofur SÍM í Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík. Þar er einnig starfræktur sýningarsalur sem er opinn öllu félagsmönnum SÍM til sýninga, fundarhalda og annarra viðburða.

Hafnarstraeti.jpeg

SÍM 

Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982 og er hagsmuna- og stéttarfélag myndlistarmanna, með um 950 félagsmenn.

SÍM hefur barist fyrir margvíslegum réttindum og hagsmunum myndlistarmanna frá stofnun og mikið hefur áunnist í baráttunni.

Félagsmenn eiga ýmist einstaklingsaðild að SÍM eða í gegnum fagfélög myndlistarmanna, en undir regnhlíf SÍM eru 7 fagfélög myndlistarmanna.

 

Markmið SÍM er að bæta kjör og starfsumhverfi myndlistarmanna, gæta hagsmuna þeirra og réttar. SÍM annast ýmis verkefni fyrir opinbera aðila, tilnefnir fulltrúa í nefndir og ráð og gefur umsagnir um ýmis mál. SÍM eru fjölmennustu samtök skapandi listamanna á Íslandi. 

 

Starfsemi SÍM má skipta í tvo hluta, hið innra starf, sem snýr að þjónustu við listamenn og hið ytra starf, sem snýr að hinu opinbera, samskipti við önnur félagasamtök og erlenda aðila.

SÍM – HIÐ INNRA STARF

SÍM aðstoðar félagsmenn sína í ýmsum faglegum málum. Á heimasíðu SÍM eru fyrirliggjandi ýmsir samningarviðmiðunartaxti SÍM, samkeppnisreglur SÍM o.fl.  Öll aðstoð sem SÍM veitir stendur félagsmönnum til boða endurgjaldslaust.

 

SÍM heldur utan um sjóðinn Mugg, tengslasjóð fyrir myndlistarmenn, sem er samstarfsverkefni milli SÍM, Reykjavíkurborgar og Myndstefs. Muggur veitir styrki til dvalar erlendis vegna myndlistarverkefna.

 

Heimasíða SÍM hefur að geyma ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir félagsmenn. Heimasíðan er uppfærð daglega með upplýsingum um sýningar og aðra myndlistartengda viðburði.

 

SÍM heldur utanum gagnagrunninn arkiv.is  – Upplýsingavef um myndlist og myndhöfunda á Íslandi, en vefurinn er byggður á gögnum frá Upplýsingamiðstöð myndlistar, (umm.is) sem stofnuð var árið 1995. Gagnagrunnurinn er gríðarlega stór og margþættur og hefur reynst ómissandi fyrir ýmsar menningarstofnanir, myndlistarmenn, fræðimenn, kennara og erlenda sýningarstjóra.

 

Félagsmenn fá árlega félagsskírteini sem er sambland af innlendu og alþjóðlegu skírteini (IAA).  Skírteinið veitir frían aðgang að öllum helstu listasöfnum hérlendis og erlendis. Auk þess er hægt að fá afslátt hjá mörgum verslunum og þjónustufyrirtækjum sem versla með myndlistarvörur gegn framvísun skírteinisins.

SÍM – HIÐ YTRA STARF

SÍM er í virku samstarfi við opinbera aðila og önnur félagasamtök bæði innanlands og erlendis. SÍM er aðili

að BÍLKÍMMyndlistarráðiBHMListahátíð og Myndstefi – Myndhöfundasjóði Íslands og IAA, Alþjóða samtökum myndlistarmanna.

SÍM HÚSIÐ

Skrifstofur SÍM eru í Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík. Í SÍM-húsinu er hægt er að nálgast á einum stað allar helstu upplýsingar um íslenska myndlist, myndlistarmenn og efni þeim tengt. Þar er einnig fundaraðstaða, aðstaða til smærri sýninga og bókasafn þar sem liggja frammi ýmis tímarit og fagbækur auk kynningarefnis um skyld málefni.

 

Aðstaðan í SÍM – húsinu stendur félagsmönnum til boða endurgjaldslaust fyrir fyrirlestra, málþing eða aðrar myndlistartengdar uppákomur.

REKSTRARFÉLAG SÍM

SÍM leigir vinnustofuhúsnæði fyrir félagsmenn víðasvegar um höfuðborgarsvæðið. Í vinnustofuhúsum SÍM eru ýmis verkstæði og sýningarsalir. Vinnustofuhús SÍM eru á Seljavegi, Hólmaslóð, Héðinsgötu, Korpúlfsstöðum, Lyngási í Garðabæ og á fjórum stöðum í Auðbrekku í Kópavogi.  Í vinnustofum SÍM hafa hátt í 230 félagsmenn starfsaðstöðu sína.

 

SÍM starfrækir gestavinnustofur fyrir erlenda myndlistarmenn í Reykjavík. Gestavinnustofur SÍM, SIM Residency, eru á Seljavegi og Korpúlfsstöðum. Í gestavinnustofum SÍM dvelja að jafnaði 18 myndlistarmenn í hverjum mánuði, eða um 200 gestalistamenn á ári. SIM Residency var stofnað árið 2002 og er afar mikilvægur þáttur í íslensku listalífi enda einnar sinnar tegundar í Reykjavík.

FORMENN SÍM FRÁ UPPHAFI

Sigrún Guðjónsdóttir  1982 – 1984,  fyrsti formaður SÍM  /  Gunnsteinn Gíslason  1984 – 1986  /  Guðný Magnúsdóttir   1986 – 1989  / Þór Vigfússon  1989 – 1992  /  Kristján Steingrímur Jónsson  1992- 1994  /  Sólveig Eggertsdóttir   1994- 1996  /  Bryndís Jónsdóttir  1996-1998  /  Vignir Jóhannsson 1998 – 2000 / Pétur Stefánsson  2000 – 2002 / Áslaug Thorlacius  2002 –  2009  /  Hlynur Hallsson  2009 – 2010  /  Hrafnhildur Sigurðardóttir  2010 – 2014  /  Jóna Hlíf Halldórsdóttir 2014 – 2018 / Anna Eyjólfsdóttir 2018 – 

bottom of page