SÍM framleigir vinnustofur til félagsmanna í 9 vinnustofuhúsum víðsvegar um höfuðborgarsvæði. Vinnustofuhúsin eru á Seljavegi 32, Hólmaslóð 4, Héðinsgötu 1, og á Korpúlfsstöðum í Reykjavík, Auðbrekku 1, 2, 6 og 14 í Kópavogi og Lyngási 7 í Garðabæ, en vinnustofurnar eru hátt í 230 talsins.
Vinnustofurnar eru alla jafna fullnýttar, en félagsmenn geta farið á biðlista og ganga þá fyrir ef vinnustofa losnar. Þeir sem eru á biðlistunum þurfa að fylgjast vel með auglýsingum frá SÍM um vinnustofur og hafa samband ef áhugi er fyrir hendi. SÍM hefur ekki samband við þá sem eru á biðlistunum til þess að bjóða vinnustofur sem losna, heldur verða félagsmenn að fylgjast vel með.
Upplýsingar og úthlutunarreglur vegna vinnustofa SÍM
Þau gæði sem SÍM aflar eiga að deilast út til félagsmanna eftir lýðræðislegum reglum. Þegar um er að ræða gæði sem eru af skornum skammti, eru skipaðar nefndir sem fara yfir umsóknir félagsmanna og afgreiða þær.
Reglur um vinnustofur SÍM eiga að tryggja að allir félagsmenn SÍM sitji við sama borð þegar kemur að því að úthluta þeim takmörkuðu gæðum sem SÍM hefur yfir að ráða.
Samþykktar reglur um vinnustofur SÍM.
-
Vinnustofur SÍM eru leigðar út til 3ja ára í senn (og hefur sú regla verið frá upphafi ).
-
Á 3ja ára fresti eru allar vinnustofurnar lausar til umsóknar. Skipuð er úthlutunarnefnd sem fer yfir umsóknirnar og úthlutar vinnustofunum.
-
Hægt er að sækja um endurnýjun á leigusamningi 2svar sinnum, ekki er hægt að leigja vinnustofu í sama vinnustofuhúsi lengur en þrjú leigutímabil, 3 x 3 ár eða samtals í 9 ár
-
Þeir félagsmenn sem ekki hafa rétt á að sækja um vinnustofu í sama vinnustofuhúsi og áður, geta þó sótt um í öðru vinnustofuhúsi á vegum SÍM.
Vinnustofuhús SÍM
Langtíma leigusamningur
SÍM hefur verið með vinnustofur fyrir félagsmenn sína á Korpúlfsstöðum frá árinu 1996, þegar 11 vinnustofur voru í boði, en frá 2006 hefur SÍM verið með allt húsnæðið á leigu. Vinnustofurnar á Korpúlfsstöðum eru leigðar til 3ja ára í senn, yfirstandandi leigutímabili lýkur 31.05.2024.
Korpúlfsstaðir eru í eigu Reykjavíkurborgar.
SÍM hefur verið með vinnustofur fyrir félagsmenn sína á Seljavegi 32, frá árinu 2006. Seljavegur er í eigu ríkisins.
Tímabundnir leigusamningar eru um eftirtalin vinnustofuhús.
Seljavegur 32, R. núverandi leigutímabili lýkur 31.05.2022
Lyngás 7, Gb. núverandi leigutímabili lýkur 31.10.2022 Auðbrekka 1, K. núverandi leigutímabili lýkur 31.12.2022
Auðbrekka 2, K. núverandi leigutímabili lýkur 10.04.2026
Auðbrekka 14, K. núverandi leigutímabili lýkur 31.12.2022
Nýbýlavegur 6, K. núverandi leigutímabili lýkur 01.11.2025
Hólmaslóð 4, R. núverandi leigutímabili lýkur 31.03.2024
Héðinsgata 1, R. núverandi leigutímabili lýkur 30.11.2022
Biðlisti
Á 3ja ára fresti eru eru allar vinnustofur auglýstar lausar til umsóknar. Félagsmenn sem ekki fá úthlutað vinnustofu geta óskað eftir því að vera settir á biðlista.
Biðlistarnir eru virkir í 3 ár, eða jafnlengi og hvert leigutímabil varir. Ef vinnustofur losna innan þessa 3ja ára leigutímabils, eru þær auglýstar aftur lausar til umsóknar
og getur þá félagsmaður af biðlistanum fengið vinnustofu. (þá er farið eftir tímaröð viðkomandi á biðlistanum)
Stjórn SÍM gætir hagsmuna félagsmanna og gætir jafnframt þess að allir félagsmenn sitji við sama borð og njóti jafnræðis þegar verið er að úthluta þeim
takmörkuðu gæðum sem SÍM hefur yfir að ráða.
.jpg)













