top of page

Skaftfell: staða forstöðumanns laus til umsóknar

508A4884.JPG

föstudagur, 14. janúar 2022

Skaftfell: staða forstöðumanns laus til umsóknar

Skaftfell, myndlistarmiðstöð Austurlands, auglýsir eftir einbeittum, sjálfstæðum og drífandi forstöðumanni með brennandi áhuga á myndlist.
Skaftfell er ein af elstu og öflugustu stofnunum um nútímamyndlist á landsbyggðinni. Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim markmiðum framfylgt með öflugri og faglegri sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðungnum.
Starfið felur í sér yfirumsjón með sýningardagskrá, almenna stjórnun, daglegan rekstur og ábyrgð á starfsemi miðstöðvarinnar. Nauðsynlegt er að nýr forstöðumaður hafi búsetu á Seyðisfirði.

Hæfniskröfur:
• Góð fagþekking á innlendum sem erlendum myndlistarheimi • Reynsla á sviði menningarstjórnunar
• Þekking og reynsla af menningarmálum almennt
• Frjó og skapandi hugsun
• Góð samskiptafærni og forystuhæfileikar
• Vönduð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
• Sveigjanleiki og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum BHM.

Allar frekari upplýsingar veitir Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, forstöðu– maður, í síma 472 1632 eða á netfanginu skaftfell@skaftfell.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2022. Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir berist á netfangið admin@skaftfell.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page