top of page

Hverfisgallerí: Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú - Steingrímur Eyfjörð

508A4884.JPG

fimmtudagur, 15. september 2022

Hverfisgallerí: Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú - Steingrímur Eyfjörð

Opnun einkasýningar Steingríms Eyfjörð, Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú, laugardaginn 17. september kl. 16 til 18

Næstkomandi laugardag, 17. September, opnar Steingrímur Eyfjörð einkasýninguna Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú í Hverfisgalleríi. Er þetta þriðja einkasýning Steingríms hjá galleríinu. Í verkum Steingríms á sýningunni koma fyrir textabrot og myndefni er vísa annarsvegar til íslenskrar þjóðtrúar og hinsvegar til skrifa heimspekingsins Ludwig Wittgensteins, nánar tiltekið til rits hans Bemerkungen über die Farben (Nokkur orð um liti), er hann ritaði ári fyrir andlát sitt, 1950. Í ritinu veltir Wittgenstein vöngum yfir tengslum sjónskynsins, lita, rökhugsunar og tungumálsins, þáttum er hann hafði skrifað um í gegnum allan sinn feril. Í anda Wittgensteins spyr Steingrímur í eigin verki frá árinu 1978; „Er til litur sem er ekki til?“ og tengir slíkar spurningar þá og nú við það samkomulag mannkyns um að það sem sé til sé í senn tilbúningur.

Í verkum sýningarinnar, sem gerð eru á árunum 2021-22, á Steingrímur í samtali við Wittgenstein, listina sjálfa sem fyrirbæri og sjálfan sig um fjórðu víddina, skynjun lita og ímyndunaraflið sem hið sterka afl er mannkynið virkjar í auknum mæli með tilkomu aukinnar myndrænnar tækni sl. alda. Í litríkum verkunum koma fyrir nokkurskonar blindpunktar (e. blind spot) fyrir miðju, sem fulltrúar fyrir hina ósýnilegu liti og það sem verður ekki lýst með orðum og enginn sér á sama hátt. „Í þessum samræðum öllum leggur listamaðurinn sjálfur línurnar og heilmikla þekkingu til, sem hann safnar að sér á afar opinn máta, laus við allt stigveldi og línulega formfestu“ segir í texta sýningarskrár eftir Birtu Guðjónsdóttur listfræðing.

Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) er einn af okkar fremstu samtímalistamönnum og hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir listsköpun sína á Íslandi og erlendis. Steingrímur nam myndlist á Íslandi og í Hollandi og hefur í verkum sínum farið inn á merkingarsvið heimspeki, vísinda, félags- og mannfræði þar sem viðfangsefni verkanna geta verið um jafnólíka hluti og trúmál, pólitík, dægurmenningu, íslenska þjóðmenningu og sögu. Steingrímur á að baki yfir hundrað einkasýninga og samsýninga, á Íslandi og erlendis, m.a. í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Reykjaness, Nýlistasafninu, Gerðarsafni, Listasafninu á Akureyri, Den Haag Gemeente Museum, Royal College of Art (London), Mücsarnok (Budapest), Centre International d’Art Contemporain (Carros, Frakklandi), Meilahti Art Museum, (Helsinki), Henie Onstad Kunstcenter (Osló) og Feneyjartvíæringnum 2007. Hann hlaut sjónlistarverðlaunin árið 2008 fyrir sýningu sína á Feneyjatvíæringnum og var tilnefndur Myndlistarmaður ársins 2021, tilnefndur ti lCarnegie Art Award 2004 og aftur 2006 og hlaut Menningarverðlaun DV fyrir myndlist árið 2002.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page