top of page

Gallery Port: Silfurbúrið á Ljósmyndahátíð Íslands -Hjördís Eyþórsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 14. janúar 2022

Gallery Port: Silfurbúrið á Ljósmyndahátíð Íslands -Hjördís Eyþórsdóttir

Hjördís Eyþórsdóttir - Silfurbúrið á Ljósmyndahátíð Íslands

Silfurbúrið (The Silvercage) er nýjasta verkið eftir Hjördísi Eyþórsdóttur. Sýniningin opnar 13. janúar kl. 20:00 og stendur til fimmtudagsins 20. janúar til 18:00.

Verkið er óður til þorpsins þar sem ekkert gerist en allir hlutir hafa orðið til og tekst á við upphafið sem endalokin óhjákvæmilega hafa í för með sér. Leiðangur um síðustu klukkustundir myrkursins. Sólarupprásin. Þar sem rómantísk mynd þorpsins brotnar hægt niður í auðn, óveður og einveru.

“Sex ár í sjálfsskipaðri útlegð. Fimmtíuþúsund klukkutímar af fjöllum og eyjum. Á meðvituðum flótta frá borginni og ómeðvituðum flótta frá sjálfri mér, settist ég að í íslensku smáþorpi til þess að reyna að láta ókunnuga gleyma mér. Til þess að gleyma sjálfri mér, búa til nýja sjálfsmynd. Þar átti fegurðin að drekkja mér en í stað þess að drukkna í fegurð gerði ég dauðaleit að henni. Sjálfsmyndin bjagast og beyglast þegar kafað er ofan í hana. Eins og fjallið. Eins og fólkið. Eins og þorpið. Leitin að frelsi frá öllu endaði læst inni í búri.

Því fjarlægðin gerir fjöllin blá en svo eru þau ekkert blá.”
Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands og verður til sýnis í Gallery Port 13. - 20. janúar 2022.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page