top of page

UMBREYTING / METAMORPHOSIS - Guðrún Arndís Tryggvadóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. nóvember 2023

UMBREYTING / METAMORPHOSIS - Guðrún Arndís Tryggvadóttir

Guðrún Arndís Tryggvadóttir opnar sýninguna UMBREYTING / METAMORPHOSIS í Sundlaug Hafnar í Hornafirði, Víkurbraut 9, laugardaginn 9. desember kl. 14:00 til 16:00. Sýningin mun standa til 25. ágúst 2024 og er opin á opnunartíma sundlaugarinnar.

Bakgrunnur Guðrúnar sem frumkvöðull á sviði umhverfisfræðslu og störf hennar sem landvörður, bæði í þjóðgarðinum á Þingvöllum og sem yfirlandvörður í Vatnajökulsþjóðgarði, nánar tiltekið á Breiðamerkursandi og Jökulsárlóni nú í sumar, kemur vel fram í síðustu verkum hennar þar sem áhugi fyrir landinu og eðli hringrásar lífefna spilar stóran þátt í rannsóknar- og vinnsluaðferðum við gerð hinna stóru efniskenndu málverka.

Sundlaugar eru samkomustaðir nútímans og vatnið er Guðrúnu lífsnauðsynleg uppspretta hugmynda og endurnýjunar. Vatnið minnir okkur einnig á hverfulleikann og hinn dulda stórkostlega lífheim sem við erum hluti af. Við syndum frá fyrstu stundu, hina níu mánuði í móðurkviði og veran í vatninu er okkur því fullkomnlega eðlileg. Guðrún syndir sjálf mikið svo hugmyndin að því að sýna einmitt í sundlaugum er ekki tilkomin af engu.
Í Sundhöll Selfoss hangir einmitt verk eftir Guðrúnu, verk sem hún gaf sveitarfélaginu Árborg nú fyrr á árinu. Í hinu sex fermetra stóra verki á sýningunni á Höfn tekur hún fyrir umbreytingar lífvera í tíma og hinn síbreytilega efnisheim sem umlykur okkur og við erum hluti af.

Stuðningur frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands gerði sýninguna mögulega.

Um listamanninn:

Guðrún Arndís Tryggvadóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún fékk inngöngu í Myndlista- og handíða Íslands sextán ára gömul, fór í framhaldsnám til Parísar og síðan til München þar sem hún hlaut æðstu verðlaun akademíunnar við útskrift.

Tveggja ára dvöl á Íslandi fylgdi í kjölfarið, starfslaun listamanna og einkasýning á Kjarvalsstöðum 1987 en síðan fór hún til Berlínar í eitt ár og til Bandaríkjanna í fjögur ár þar sem hún tók þátt í fjölda sýninga. Hún átti síðan eins árs viðdvöl á Íslandi veturinn 1992-1993 og stofnaði þá myndmenntaskólann Rými.

Síðan lá leiðin aftur til Þýskalands þar sem hún stofnaði hönnunarstofuna Kunst & Werbung, málaði og var m.a. fengin til að hanna minnisvarðann Die Tonstadt-Prisma fyrir borgina Großalmerode.

Guðrún sneri aftur til Íslands um aldamótin 2000. Eftir heimkomuna urðu náttúruvernd og umhverfismál henni æ mikilvægari. Árið 2004 hóf hún undirbúning að stofnun umhverfisvefsins náttúran.is / Nature.is sem hún rak til ársins 2016.

Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem landvörður meðfram listsköpun sinni og rekið fræðslu- og útgáfufélagið Listrými sem gaf m.a. út bókina Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar árið 2019 en Ámundi var einn virtasti lista- og handverksmaður 18. aldar á Suðurlandi.

Guðrún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, bæði á sviði umhverfismála og menningarmiðlunar sem og fyrir myndlist sína. Verk hennar byggja á sterkum hugmyndafræðilegum og oft sögulegum grunni en hún gerir sífellt tilraunir með nýja tækni og frásagnaraðferðir í list sinni.

Nánar um verk og feril Guðrúnar á tryggvadottir.com.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page