top of page

TORG Listamessa – 3.-12. október 2025

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. júní 2025

TORG Listamessa – 3.-12. október 2025

TORG Listamessa fer fram í sjöunda sinn 3.-12. október 2025 á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum. Listamessan verður haldin með breyttu sniði í ár en félagsmenn geta tekið þátt í samsýningu félagsins í anda Kanils. Sýningarstjóri er Paulina Kuhn.

Alls er hægt að skrá 5 verk á sýninguna, með því að fylla út umsóknareyðublað hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSc9F6b0x-cpYhDjB8oxyhh-STl8UiPduEvCn3e0fU0_73OZrw/viewform?usp=dialog

Skráningu lýkur á miðnætti föstudaginn 8. ágúst 2025.

Athugið að þátttakendur verða að vera fullgildir félagsmenn SÍM. Listamenn skipta með sér að sitja sjálfir yfir á sýningunni.

Sýningaropnun föstudaginn 3. október kl. 17-20.

Opnunartími:
4.-5. október kl. 12-17
11.-12. október kl.12-17

Farið er fram á 10.000 kr. þátttökugjald sem gildir sem staðfestinga á þátttöku og fæst ekki endurgreitt. SÍM tekur ekki prósentu af sölu listaverka.

Sýningin er skipulögð af Sambandi íslenskra myndlistarmanna með stuðningi frá Reykjavíkurborg.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page