top of page

Skaftfell: Nýr forstöðumaður - Pari Stave

508A4884.JPG

föstudagur, 18. mars 2022

Skaftfell: Nýr forstöðumaður - Pari Stave

Nýr forstöðumaður Skaftfells: Pari Stave

Stjórn Skaftfells kynnir með ánægju að Pari Stave hefur verið ráðin nýr forstöðumaður Skaftfells, Myndlistarmiðstöð Austurlands. Hún tekur til starfa 1. maí næstkomandi.

Síðastliðin tvö ár hafa Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Julia Martin deilt forstöðu yfir miðstöðinni. Hanna Christel lætur af störfum 1. júlí nk. en Julia mun starfa áfram hjá Skaftfelli með umsjón yfir alþjóðlegum verkefnum Skaftfells og gestavinnustofu.

Pari Stave starfaði síðastliðin átta ár hjá Metropolitan safninu í New York þar sem hún sinnti stöðu sem yfirmaður stjórnsýslu-, safna- og sýningarstjóraverkefna í nútíma- og samtímalistadeildinni. Þar á undan starfaði hún sem sýningarráðgjafi fyrir American-Scandinavian Foundation (AFS). Pari er menntaður listfræðingur og sýningarstjóri og hefur komið að fjölda sýninga þeirra á meðal Ragnar Kjartansson: Death is Elsewhere sem hún vann í samvinnu með Jennifer Farrel og var fyrst sýnd í Metropolitan 2019. Hún sýningarstýrði Other Hats: Icelandic Printmaking ásamt Ingibjörgu Jóhannsdóttur fyrir Print Center í New Yourk og var síðar sýnd á Listasafni Íslands 2018. Árið 2017 skipulagði hún og skrifaði sýningarskrá fyrir sýninguna Hverfing|Shapeshifting í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Hjá ASF stýrði hún ásamt Patriciu C. Berman sýningunni Munch|Warhol and the Multiple Image sem ferðaðist til Ankara árið 2013 í tilefni af fyrstu heimsókn konungshjóna Noregs til Tyrklands. Hún starfaði auk þess með Timothy Person við sýninguna New Wave Finland: Contemporary Photography from the Helsinki School. Árið 2013 sýningarstýrði hún samsýningunni Iceland: Artists Respond to Place á Katonah Listasafninu í New York.

Við óskum Pari innilega til hamingju og hlökkum til að fá hana til samstarfs.


Skaftfell's new director: Pari Stave
The Board of Skaftfell is delighted to announce the appointment of Pari Stave as new director of Skaftfell Center for Visual Art. She will take up her position on May 1, 2022.

During the previous two years the directorship has been shared between Hanna Christel Sigurkarlsdóttir and Julia Martin. Hanna will leave Skaftfell on July 1, while Julia will stay on as project manager for Skaftfell’s international projects and the residency program.

Pari Stave comes from The Metropolitan Museum in New York, where for the past eight years she has held the position of Senior Manager of Administration, Collections, and Curatorial Projects in the Department of Modern and Contemporary Art. Prior to joining The Met she worked as Consulting Curator for the American-Scandinavian Foundation (ASF). An art historian and curator, Pari has collaborated on numerous exhibitions, among them Ragnar Kjartansson: Death Is Elsewhere, which was co-organized with Jennifer Farrell and debuted at the Met in 2019. She was co-curator, with Ingibjörg Jóhannsdóttir, of Other Hats: Icelandic Printmaking, organized for the International Print Center New York and later shown at Listasafn ĺslands in 2018. In 2017, she organized and wrote a catalogue essay for Hverfing|Shapeshifting, which was shown at Verksmiðjan á Hjalteyri. At ASF, she co-curated with Patricia C. Berman, Munch|Warhol and the Multiple Image, which traveled to Ankara in 2013 on the occasion of the first visit to Turkey of the King and Queen of Norway. She also collaborated with Timothy Persons on the exhibition, New Wave Finland: Contemporary Photography from the Helsinki School. In 2013, she curated Iceland: Artists Respond to Place, a group exhibition at the Katonah Museum of Art in New York.

We congratulate Pari on her new position and look forward to welcoming her to Skaftfell and to Seyðisfjörður.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page