top of page

Samsýning: Túndran og tifið á Sléttu

508A4884.JPG

fimmtudagur, 27. júní 2024

Samsýning: Túndran og tifið á Sléttu

Sýningaropnun fimmtudaginn 4. júlí í Óskarsbragga á Raufarhöfn, Höfðabraut 4a, 675 Raufarhöfn. Sýningin stendur til 11. ágúst 2024.

Sýningin "Túndran og tifið á Sléttu" hverfist um Melrakkasléttu og þær breytingar sem hafa þegar orðið og munu senn verða bæði lífríki og jarðvegi landsvæðisins, sem afleiðing hamfarahlýnunar. Þátttakendur sýningarinnar samanstanda af fjölbreyttum hópi reynslumikilla listamanna: myndlistarmanna, tónskálds, hljóðfæraleikara og hönnuðar. Sýningarverkefnið er unnið í samstarfi við Menningarfélagið Heimsenda og Rannsóknastöðina Rif.

Vísindafólk hefur safnað saman gögnum um landsvæðiðog verður sá gagnabanki aðgengilegur listamönnunum. Þeir munu móta verk úr gögnunum og miðla þeim á samsýningu sem haldin verður á Raufarhöfn næsta sumar. Ósæð verkefnisins er Óskarsbraggi, veglegt timburhús á Raufarhöfn, sem mun hýsa sýninguna. Húsið hefur verið í uppbyggingu undanfarin ár og er stefnt að því að það verði sannkölluð menningarmiðstöð. Það tengir verkefnið við brothætta byggðarsögu Raufarhafnar – hnignun og uppgang.


Verkefnið hófst formlega sumarið 2022, þegar hópurinn kom saman í tæpa viku til að kanna aðstæður, kynnast umhverfinu og hvert öðru. Ári síðar eða núna í sumar var síðan haldin vikulöng vinnustofudvöl á Melrakkasléttu, þar sem sá grunnur sem þegar var grafinn var steyptur. Þá styrktust tengsl þátttakenda við nærsamfélagið: náttúruna, heimamenn, vísindafólk og sveitarstjórn.

Melrakkaslétta býr yfir náttúrufegurð og menningarsögu sem mikilvægt er að unnið sé með á vettvangi listarinnar á þeim umbrotatímum sem loftslagsbreytingar eru. Sléttan heyrir til Norðurheimsskautasvæðisins en afleiðingar hlýnunar eru meiri og hraðari á vistkerfi þess heldur en önnur vistkerfi jarðar. Þar sem Melrakkaslétta er einn af fáum stöðum í heiminum sem hægt er að keyra inn á Norðurheimsskautasvæðið er það tilvalin staðsetning fyrir Rannsóknarstöðina Rif, stofnun sem kemur að verkefninu. Pedro Rodrigues, forstöðumaður Rifs, sér um að veita þátttakendum gögn, tól og ráðgjöf um ástand lífríkis og náttúru staðarins. Þverfagleg nálgun þessa verkefnis á túlkun og miðlun loftslagsbreytinga á Norðurslóðum er einn af helstu styrkleikum þess.

Listamenn:
Berglind Tómasdóttir, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Kristín Reynisdóttir, Margrét H. Blöndal, Mark Wilson, Pétur Magnússon, Pétur Örn Friðriksson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Snorri Freyr Hilmarsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir og Þórarinn Blöndal.

Verkefnastjóri:
Julie Sjöfn Gasiglia

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page