top of page

Finissage sýningar Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur ONÍ / INTO í Sesseljuhúsi

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. ágúst 2023

Finissage sýningar Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur ONÍ / INTO í Sesseljuhúsi

Verið velkomin á lokahóf sýningarinnar ONÍ sem staðið hefur í Sesseljuhúsi á Sólheimum síðan þ. 3. júní sl. Sýningarspjall og léttar veitingar laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. ágúst frá kl. 14:00 til 17:00.

Guðrún Arndís Tryggvadóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún fékk inngöngu í Myndlista- og handíða Íslands sextán ára gömul, fór í framhaldsnám til Parísar og síðan til München þar sem hún hlaut æðstu verðlaun akademíunnar við útskrift. Tveggja ára dvöl á Íslandi fylgdi í kjölfarið, starfslaun listamanna og einkasýning á Kjarvalsstöðum 1987 en síðan fór hún til Berlínar í eitt ár og til Bandaríkjanna í fimm ár þar sem hún tók þátt í fjölda sýninga. Hún átti síðan eins árs viðdvöl á Íslandi veturinn 1992-1993 og stofnaði þá myndmenntaskólann Rými. Síðan lá leiðin aftur til Þýskalands þar sem hún stofnaði hönnunarstofuna Kunst & Werbung, málaði og var m.a. fengin til að hanna minnisvarða fyrir borgina Großalmerode.

Guðrún sneri aftur til Íslands um aldamótin 2000. Eftir heimkomuna urðu nátturuvernd og umhverfismál henni æ mikilvægari. Árið 2004 hóf hún undirbúning að stofnun umhverfisvefsins Náttúran.is / Nature.is sem hún rak til ársins 2016. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem landvörður meðfram listsköpun sinni og rekið fræðslu- og útgáfufélagið Listrými sem gaf m.a. út bókina Lífsverk - Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar árið 2019 en Ámundi var einn virtasti lista- og handverksmaður 18. aldar á Suðurlandi.

Sýningunni ONÍ fylgir sýningarskrá sem einnig er gefin út af Listrými.

Guðrún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, bæði á sviði umhverfismála og menningarmiðlunar sem og fyrir myndlist sína. Verk hennar byggja á sterkum hugmyndafræðilegum og oft sögulegum grunni en hún gerir sífellt tilraunir með nýja tækni og frásagnaraðferðir í list sinni.

Nánar á: tryggvadottir.com

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page