top of page

SÍM: Gestaíbúð í Aþenu - laus tímabil

508A4884.JPG

fimmtudagur, 10. febrúar 2022

SÍM: Gestaíbúð í Aþenu - laus tímabil

Enn er hægt að sækja um Gestaíbúð SÍM í Aþenu.

Það er laust í júlí og ágúst og má sækja um 2 vikur eða 4 vikur.

Íbúðin sem er nýuppgerð er á efstu hæð í nokkura íbúða húsi.

Íbúðin er búin öllum helstu þægindum, þar á meðal Wi-Fi og snjall sjónvarpi. Eldhúsið er stórt og búið öllum helstu tækjum og búnaði.
Stórar svalir með skyggni og mörgum plöntum, tengja saman stofu og eldhús og virka sem framlenging af íbúðinni.
Í íbúðinni er eitt stórt svefnherbergi, queen-size rúm með lúxus heilsudýnu (miðlungs stíf) og koja.
Á annarri hæð er sérherbergi sem annað hvort nýtist sem svefnherbergi fyrir tvo eða sem vinnustofu.
Þaksvalirnar eru 15 m2 með borðum, stólum, vaski og vinnuborði.

Nánari upplýsingar: https://www.sim.is/athens-residency

Vinsamlegas sendið fyrirspurn á: ingibjorg@sim.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page