Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Listaverk í opinberu rými - ábyrgð og viðhald - Málþing
föstudagur, 11. nóvember 2022
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Listaverk í opinberu rými - ábyrgð og viðhald - Málþing
Listaverk í opinberu rými - ábyrgð og viðhald
Málþing um opinber listaverk í Danmörku og á Íslandi á millistríðsárunum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 19. nóvember 2022 kl. 14:00 -17:00. Aðgangur að máþinginu er ókeypis og öllum opinn. Dönsku fyrirlesararnir flytja erindi sín á ensku.
Efnt verður til málþings um list í opinberu rými í Danmörku og á Íslandi á tímabilinu 1920 til 1944. Tilefnið er sýning í Listasafni Sigurjóns, sem ber heitið Veggmynd án veggjar – Saltfiskstöflun Sigurjóns Ólafssonar. Danskir og íslenskir fræðimenn munu fjalla um að á millistríðsárunum var lögð áhersla á að listin ætti að vera fyrir fólkið.
Tom Hermansen er í doktorsnámi við Hafnarháskóla og með styrk frá Nýja Carlsbergs sjóðnum. Hann mun gera grein fyrir rannsóknum sínum á veggskreytingum frá þessum tíma í erindi sem hann nefnir: Should they stay or should they go? Monumental mural painting – realized in the period 1925 – 1940.
Listfræðingurinn Jens Peter Munk, sem ber ábyrgð á og hefur eftirlit með útilistaverkum í Kaupmannahöfn, mun skýra frá umfangsmikilli og vel heppnaðri endurgerð á minnismerki um sjómenn á Löngulínu í Kaupmannahöfn. Verkið er eftir myndhöggvarann Svend Rathsack og var afhjúpað 1928.
Hlynur Helgason, dósent við Háskóla Íslands, gerir í erindi sínu grein fyrir því umhverfi sem blasti við íslenskum myndlistarmönnum á tímabilinu 1920 til 1944, þar sem efnahagsástand þjóðarinnar gerði það óhugsandi að reisa stórbrotin verk í almannarými – nema með fáeinum undantekningum.
Birgitta Spur, stofnandi Listasafns Sigurjons beinir sjónum sínum að því stórvirki í framúrstefnustíl, sem Sigurjón, þá ungur nemi við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn, vann á árunum 1934-35: lágmynd af konum við fiskvinnslu. Þetta minnismerki um undirstöðugrein í atvinnusögu landsins hefði hann vonast til mætti prýða viðeigandi byggingu á Íslandi.
Byggingaverkfræðingurinn Indriði Níelsson mun fjalla um skemmdirnar á lágmynd Sigurjóns, á grundvelli rannsóknarskýrslu sem hann vann sumarið 2021. Verkið var reist á Sjómannaskólareitnum 1953, og hefur því staðið utandyra í 69 ár. Almennt er talið að ásættanleg ending steinsteyptra mannvirkja sé um 50 ár fyrir steypta kalda fleti en 30-40 ár fyrir múr.
Védís Eva Guðmundsdóttir lögfræðingur mun segja frá helstu atriðum höfundar- og sæmdarréttar.
Í lok málþingsins geta ráðstefnugestir beint spurningum til fyrirlesara og síðan er boðið upp á léttar veitingar.
Fundarstjóri er Halldóra Jónsdóttir, orðabókarritstjóri.