World Art Day - SÍM

fimmtudagur, 16. apríl 2026
World Art Day - SÍM
Miðvikudaginn 15. apríl hélt SÍM upp á World Art Day með opnum vinnustofum og dagskrá á Korpúlfsstöðum.
Gestum var boðið að heimsækja vinnustofur á fjórum stöðum þar sem listamenn tóku á móti gestum, kynntu verk sín og veittu innsýn í vinnuferli sitt.
Á Kaffistofu Korpúlfsstaða voru sýnd myndbönd með alþjóðlegum gestalistamönnum í gestavinnustofudvöl SÍM þar sem mátti sjá viðtöl, kynningar á verkum og innsýn í dvöl þeirra á Íslandi.
Á Hlöðuloftinu Korpúlfsstöðum stendur yfir einkasýning Helga Þorgils Friðjónssonar. Helgi tók á móti gestum auk þess sem Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, tók viðtal við hann í tilefni dagsins.
Slóðin á viðtalið við Helga hér: www.sim.is/helgi-thorgils-wad
Athugið að viðtalið er á ensku
Viðtöl við Artists - In - Residence á Íslandi: https://vimeo.com/1183381058
Þetta er í fjórða sinn sem SÍM tekur þátt í Alþjóðlega myndlistardegi á vegum UNESCO og The International Art Association, og við erum stolt af því að taka þátt í að efla sýnileika myndlistar.
