Wiesława Nowicka: The Living Remains

þriðjudagur, 24. nóvember 2026
Wiesława Nowicka: The Living Remains
Hafnar space, Opnun fimmtudaginn 3. desember kl 17:00 - 20:00
Sýningin stendur yfir 04.12 - 09.12 2026
The Living Remains er einkasýning eftir Wiesława Nowicka í Hafnar.space í Reykjavík, sem hluti af hluti af seríunni Sleepy Conversations. Sýningin samanstendur af olíumálverkum, prentverkum og myndböndum í bland við ljós og texta. Í verkunum kannar Wieslawa tengsl mannslíkamans við náttúru og minningar og veltir fyrir sér stöðu okkar innan lífríkisins.
Sleepy Conversations varð til við listrannsóknir og vettvangsheimsóknir á Íslandi, í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi, þar sem listamaðurinn skoðar norðurslóðir sem bæði viðkvæm og þrautseig rými. Sofandi og liggjandi líkamar birtast í skógum og náttúrulegu umhverfi, svifandi á milli svefns og vöku, nándar og berskjöldunar. Svefn verður myndlíking fyrir tengsl okkar við náttúruna, á meðan tré birtast okkur sem lifandi vitni að umhverfisbreytingum og afskiptum manna.
Í skammdeginu dregur The Living Remains fram hugmyndir um svefn, vetrardvala og lífsseiglu, eins og undiralda í lyngum sjó. Áhorfendum er boðið að hugleiða það sem eftir lifir, að staldra við í minningu um og í tengslum við náttúruna, á tíma þar sem heimurinn virðist standa í stað.
▪️listamaður
Wiesława Nowicka er þverfagleg myndlistarkona, fædd í Póllandi, búsett í Reykjavík og París. Hún vinnur olíumálverk, koparristur, myndbandsverk og innsetningar. Verk hennar fjalla um tengsl mannslíkamans, náttúrunnar, minninga og líffræðilegs fjölbreytileika.
Núverandi rannsóknir Wiesłöwu, sérstaklega í verkinu Sleepy Conversations, byggja á vettvangsrannsóknum á Norðurlöndum og rannsaka hvernig við búum í landslagi og tengjumst hinum ómannlega lifandi heimi. Að ganga, fylgjast með og upplifa staði með líkamanum eru lykilatriði í þessu ferli.
Í verkinu Sleepy Conversations búa sofandi líkamar í draumkenndu landslagi, birtingarmyndir varnarleysis, sem samt tilheyra landslaginu. Grafnar trjámyndir hennar kanna minningar, tíma og umbreytingar í umhverfinu.
Með því að sameina heimildarvinnu við sköpun leitast hún við að tengja mannlega upplifun við umhverfið.
◼️ The Living Remains | Wiesława Nowicka
◾️OPNUN: 3. Desember 2026, 17:00-20:00
▪️OPNUNARTÍMAR: 4.-9. Desember, virka daga 16:30–18:30, 14:00–16:00 um helgina
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagöta 17, inngangur A, önnur hæð
Instagram: https://www.instagram.com/wiwnow/
https://fb.me/e/5nU0fDsdg
The Living Remains is a solo exhibition by Wiesława Nowicka at Hafnar.space in Reykjavík, developed from her ongoing artistic project Sleepy Conversations. Bringing together oil paintings, etching, video, light and text, the exhibition explores the relationship between the human body, nature and memory, questioning our place within the living world.
Developed through several years of artistic research and fieldwork in Iceland, Sweden, Norway and Finland, Sleepy Conversations examines northern landscapes as spaces of both vulnerability and resilience. Sleeping and resting bodies appear within forests and natural environments, suspended between presence and absence, intimacy and exposure. Sleep becomes a metaphor for our connection to nature, while trees emerge as living witnesses to environmental change and human intervention.
Presented during one of the darkest periods of the year, The Living Remains draws on the notions of sleep, hibernation and the persistence of life beneath apparent stillness. It invites viewers to reflect on what remains alive, remembered and connected when the natural world appears to be at rest.
▪️artist
Wiesława is a multidisciplinary visual artist born in Poland, based in Reykjavík and Paris. She works across oil painting, etching and video installations. Her practice explores relationships between the human body, nature, memory and biodiversity.
Wieslawa’s current research, particularly Sleepy Conversations, draws on fieldwork across Nordic territories, investigating how we inhabit landscapes and connect with the non-human living world. Walking, observing and physically experiencing places are central to this process.
In Sleepy Conversations, sleeping bodies inhabit dreamlike landscapes, expressing vulnerability and belonging. Her engraved tree portraits explore memory, time and environmental transformation.
Combining documentary observation with imagination, she seeks to reconnect human experience with the environments we share.
The Living Remains | Wiesława Nowicka
◾️OPENING: Thursday December 3rd 2026, 17:00-20:00
▪️HOURS: 4.-9. December 2026, weekdays 16:30-18:30, weekend 14:00-16:00
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagata 17, A-side entrance, second floor
Instagram: https://www.instagram.com/wiwnow/
https://fb.me/e/5nU0fDsdg
