VINKILL / ANGLE - Anna Á. Brynjólfsdóttir

miðvikudagur, 23. apríl 2025
VINKILL / ANGLE - Anna Á. Brynjólfsdóttir
Laugardaginn 26. apríl næstkomandi kl. 14–16 opnar Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýninguna Vinkill / Angle í Listasal Mosfellsbæjar. Sýningin stendur til og með 23. maí og er opið frá kl. 9–18 alla virka daga og 12–16 á laugardögum.
Vinkill (e. Angle) er áttunda sýning Önnu Álfheiðar Brynjólfsdóttur þar sem hún sýnir verk sín, og samanstendur af þrívíðum málverkum og plexíglerverkum. Þótt efniviður sé ólíkur eiga verkin sama uppruna.
Málverkin bera með sér blæ textíls en færast nær skúlptúr með efnislegri áferð. Með fínlegri vinnu, þar sem form og efni mótast af nákvæmni, er leitast við að vísa í handverk fortíðar – arfleifð kvenna, þar sem hver þráður var lagður af kostgæfni og næmni. Plexíglerverkin eru jafnframt hluti af þessari leit – en þar birtist hið ljóðræna í gegnum skarpa geómetríu, skugga og ljósbrot, þar sem andstæður skarast í hljóðlátri spennu.
Anna Álfheiður (f. 1977) útskrifaðist með B.A. í myndlist (2009) og M.A. í listkennslu (2020) frá Listaháskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún unnið með óhlutbundin þrívíð form þar sem strangflatalist mætir ljóðrænni skynjun – þar sem mörk málverks, textíls og skúlptúrs eru könnuð samhliða upplifun áhorfandans.