top of page

Verkefnastjóri vinnustofa

508A4884.JPG

þriðjudagur, 14. júlí 2026

Verkefnastjóri vinnustofa

Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) leitar að verkefnastjóra í 70% starf til að hafa umsjón með vinnustofum félagsins og daglegum rekstri þeirra.

Starfið gegnir lykilhlutverki í þjónustu við leigjendur, samskiptum við hagsmunaaðila og þróun starfseminnar í samstarfi við stjórn SÍM.

Verkefnastjóri vinnustofa heyrir undir framkvæmdastjóra. Leitað er að aðila sem getur unnið sjálfstætt en jafnframt náið með framkvæmdastjóra og formanni SÍM.

Helstu verkefni og ábyrgð

-Umsjón með daglegum rekstri vinnustofa SÍM
-Samningagerð
-Gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana
-Samskipti og þjónusta við félagsmenn
-Eftirfylgni með rekstrarkostnaði og tekjum
-Umsjón með viðhalds- og framkvæmdamálum í samstarfi við húsvörð
-Samstarf við stjórnvöld, sveitarfélög, húseigendur og samstarfsaðila eftir því sem við á í samstarfi við stjórn SÍM
-Þátttaka í stefnumótun og þróun vinnustofukerfis SÍM
-Tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi félagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

-Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla
-Reynsla af verkefnastjórnun, rekstri eða stjórnsýslu
-Góð skipulags- og samskiptahæfni
-Reynsla af samningagerð og samskiptum við ólíka hagsmunaaðila kostur
-Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
-Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
-Almenn þekking á viðhaldi og rekstri fasteigna er kostur
-Áhugi á starfsemi myndlistarmanna og menningarmálum kostur

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2026
Um er að ræða 70% starf.

Hægt er að sækja um á alfred.is https://alfred.is/starf/verkefnastjori-250 eða með því að senda inn umsókn og ferilskrá á umsokn@sim.is

Frekari upplýsingar um starfið veitir Júlía Marinósdóttir, juliam@sim.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page