top of page

Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Sesselju Björnsdóttur í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17–20.

508A4884.JPG

þriðjudagur, 25. ágúst 2026

Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Sesselju Björnsdóttur í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17–20.

Sesselja á að baki áratuga reynslu í listsköpun og kennslu. Hún stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og Beaux-Arts í Toulouse í Frakklandi og útskrifaðist síðar úr kennaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands (MHÍ) árið 1984 og málaradeild sama skóla árið 1989. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis.
Verkin á sýningunni eru olía á striga og á pappír. Sem listmálari leitar hún eftir því að fanga náttúruna og vinna með nærveru hennar og kraft. Verkin verða til í næmu ferli þar sem listakonan umbreytir upplifun, hreyfingu og tilfinningu í sjónræna tjáningu.
📍 Grafíksalurinn, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
Gengið er inn hafnarmegin.
Opnun: Fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17–20
Sýningartímabil: 27. ágúst–13. september
Opið: Miðvikudaga–sunnudaga kl. 14–18
Lokað mánudaga og þriðjudaga.
✨ Allir velkomnir!
-------------------
You are warmly invited to the opening of Sesselja Björnsdóttir’s solo exhibition at Grafíksalurinn, Tryggvagata 17, on Thursday, 27 August, from 5–8 p.m.
Sesselja has decades of experience as both an artist and art teacher. She studied at the Reykjavík School of Visual Arts and at the École des Beaux-Arts in Toulouse, France, before graduating from the Department of Art Education at the Icelandic College of Arts and Crafts (MHÍ) in 1984 and from its Painting Department in 1989. She has held several solo exhibitions and participated in group exhibitions both in Iceland and abroad.
The exhibition features works in oil on canvas and paper. As a painter, she explores nature as both presence and force, seeking to capture its shifting energy and atmosphere. Her paintings emerge from a sensitive and intuitive process in which experience, movement and emotion take visual form.
📍 Grafíksalurinn, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
Entrance on the harbour side.
Opening: Thursday, 27 August, 5–8 p.m.
Exhibition dates: 27 August–13 September
Opening hours: Wednesday–Sunday, 2–6 p.m.
Closed Mondays and Tuesdays.
✨ Everyone is welcome!

Íslensk Grafík
Icelandic Printmakers Association
Tryggvagata 17, hafnarmegin/harbour side
101 Reykjavik
Iceland
Opening hours: Thursday - Sunday 2-5 pm
Free entrance
http://www.islenskgrafik.is/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page