top of page

Aðalheiðar Valgeirsdóttur : í FJÁRHÚSINU

508A4884.JPG

fimmtudagur, 10. september 2026

Aðalheiðar Valgeirsdóttur : í FJÁRHÚSINU

Velkomin á opnun myndlistarsýningar Aðalheiðar Valgeirsdóttur í FJÁRHÚSINU, Höfða II í Biskupstungum, laugardaginn 12. september kl. 14:00. Á sýningunni eru glæný og eldri verk sem unnin eru á vinnustofu hennar í Höfða.

Á sýningunni eru glæný og eldri verk sem unnin eru á vinnustofu hennar í Höfða.
Gamla fjárhúsið hefur nú verið endurbyggt og fær nýtt hlutverk í sveitinni sem menningarhús.

Náttúran speglar sig
Alltumlykjandi náttúran, víðáttan græna, flæðandi áin, mýrlendið og fjöllin í fjarska finna sér farveg inní huga minn. Síbreytileg ásýndin og litirnir virkja hughrifin, sól í dag, rigning á morgun, þoka, dalalæða, mistur. Náttúran speglar sig á hvítum striganum og tekur á sig mynd. Hún keppir ekki við frummyndina leyfir sér að fara eigin leiðir í sköpunarferlinu og ný mynd verður til. AV

Aðalheiður Valgeirsdóttir er myndlistarmaður og listfræðingur. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýninga hér á landi og erlendis. Hún hefur unnið ýmis verkefni á sviði listfræði, sem kennari og greinahöfundur og verið sýningarstjóri í söfnum og galleríum. Myndheimur Aðalheiðar hefur frá upphafi hverfst um náttúruna og nálgunin tekið breytingum í áranna rás. Verk hennar eru unnin á mörkum hins raunverulega og hins huglæga í beinum tengslum við náttúruna og síbreytilegar birtingarmyndir hennar allan ársins hring. Gróður og lífræn náttúruform einkenna verk hennar þar sem leitast er við að túlka iðandi lífskraftinn með olíulitum á striga.
Aðalheiður býr í Reykjavík og í Biskupstungum þar sem hún vinnur að list sinni.
SÝNINGIN VERÐUR OPIN FRAM EFTIR HAUSTI - NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page