Veigar Ölnir Gunnarsson: Á MEÐAN

miðvikudagur, 21. október 2026
Veigar Ölnir Gunnarsson: Á MEÐAN
Sýningarsalur Listasafns, Safnahúsið Ísafirði Opnun laugardaginn 24 október kl 14:00
Sýningin stendur yfir 24.10 - 17.01 2027
Listasafn Ísafjarðar býður gesti hjartanlega velkomna á opnun einkasýningar Veigars Ölnis Gunnarssonar: Á meðan. Opnunin fer fram laugardaginn 24. október kl. 14:00 í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Ísafirði. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Í sýningunni Á meðan verður skrifstofa að umgjörð verka þar sem niðurbrot og umbreyting á sér stað. Kunnugleg umhverfi leysast upp og hverfa frá upprunalegu hlutverki eða merkingu.
Tölvuskjáir loga í mannlausri skrifstofunni og á þeim renna myndbrot hvert inn í annað líkt og á skjávara. Þar sést sumarhús inni í skógi sem er hægt og rólega að liðast í sundur. Húsið hvílir á milli trjánna og sameinast umhverfi sínu smám saman og plöntur, tré og skordýr hafa gert sig heimakomin. Hver rammi dvelur um hríð á þessu viðfangi og rauntími breytinganna fær þannig pláss til að minna á sig og sín áhrif.
Annars staðar í rýminu hafa ljósmyndir verið leystar upp á brotekennt undirlag og það eimir aðeins eftir af upprunalegu myndunum. Útlínur kunnuglegra fyrirbæra renna saman og mynda óskýra heild. Í þessu umhverfi verða mörkin milli þess sem var og þess sem verður óljós og á meðan eitt brotnar niður tekur annað að myndast.
Veigar Ölnir Gunnarsson er myndlistamaður búsettur í Kaupmannahöfn. Hann stundaði nám við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og lauk síðar framhaldsprófi við Piet Zwart Institute í Rotterdam. Í myndlist sinni vinnur Veigar með skúlptúra, vídjó og fudnið efni. Verk hans hafa nýlega verið sýnd í TENT og A Tale of a Tub í Hollandi.
Aðgangur ókeypis Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.
Meanwhile 24 October 2026 – 17 January 2027 Veigar Ölnir Gunnarsson
Exhibition Hall, Ísafjörður Art Museum, 2nd floor (left) Ísafjörður Culture House
Ísafjörður Art Museum warmly invites you to the opening of Meanwhile, a solo exhibition by Veigar Ölnir Gunnarsson. The opening will take place on Saturday, 24 October, at 14:00 PM in the museum’s exhibition space on the second floor of Safnahúsið (Ísafjörður Culture House) in Ísafjörður. Light refreshments will be served.
In the exhibition Meanwhile, an office becomes the setting for works in which decay and transformation take place. Familiar environments and motifs dissolve and drift away from their original purpose.
Computer screens illuminate this vacated corporate work space – on them, seemingly still images fade into one another like screensavers. Within these static frames a summerhouse, deep in the forest, slowly comes apart. Nestled among the trees, it gradually merges with its surroundings. Lingering on the plants, trees and insects that have made themselves at home in the collapsing structure, allows real time to make its presence felt.
Elsewhere, photographs have dissolved beyond familiar form, and outlines of recognisable figures can be traced across fragmented surfaces. As one thing breaks down, another begins to take shape.
Veigar Ölnir Gunnarsson is a visual artist based in Copenhagen. He studied Fine Art at the Iceland University of the Arts and later completed a Masters degree at the Piet Zwart Institute in Rotterdam. In his artistic practice, Veigar works with sculpture, video, and found materials. His work has recently been exhibited at TENT and A Tale of a Tub in the Netherlands.
Admission is free. The exhibition is supported by the Icelandic Visual Arts Fund.
