Veðrun - samsýning á verkum félaga í FÍSL – Félags íslenskra samtímaljósmyndara

fimmtudagur, 16. janúar 2025
Veðrun - samsýning á verkum félaga í FÍSL – Félags íslenskra samtímaljósmyndara
Þann 17. janúar opnar samsýningin "VEÐRUN" á verkum félaga í FÍSL – Félags íslenskra samtímaljósmyndara - í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2025.
Sýningunni er ætlað að leggja fram hugleiðingar um stöðu ljósmyndunar í samtímalist og í listasögunni. Sýningin kannar einnig hvernig hægt er að skilgreina ljósmyndun á óhefðbundinn hátt þar sem listamennirnir kanna tengsl mannsins við umhverfi sitt. Í verkunum sjáum við ummerki eftir manninn en mannveran er hvergi sjáanleg.
Sýningin kannar áhrif mannsins á náttúruna og umhverfið. Sýndar verða ljósmyndir af yfirgefnu landslagi þar sem við sjáum einungis óhlutbundin eða hlutbundin ummerki, ýmist í náttúrunni, innanhúss, í borgarlandslaginu, eða samfélagslegu samhengi.
Sýnendur eru:
Einar Falur Ingólfsson
Nina Zurier
Stuart Richardson
Eva Schram
Hallgerður Hallgrímsdóttir
Katrín Elvarsdóttir
Bjargey Ólafsdóttir
Bára Kristinsdóttir
Jóna Þorvaldsdóttir
Björn Árnason
Kristín Sigurðardóttir
María Kjartansdóttir
Bragi Þór Jósefsson
Valdimar Thorlacius
Claire Paugam
Þórsteinn Svanhildarson
Sýningarstjóri: Daría Sól Andrews
Sýningin er opin alla daga. Lokasýningardagur er sunnudagurinn 16. mars.


