VASI/FASI

fimmtudagur, 22. október 2026
VASI/FASI
SÍM Gallery, hafnarstræti 16, laugardaginn 24 október kl 15:00 - 17:00
Sýningin VASI/FASI stefnir saman samtíma keramik úr ólíkum áttum, þar sem umbreytingu formsins og dýnamískum aðferðum er fagnað. Á sýningunni má sjá hvernig hlutverk ílátsins og staða vasans fer frá því að vera þjónn hefðarinnar, tilgangsins og helgisiðanna yfir í óhefðbundnari hlutverk sem farartæki og leiksvið fasans, innan miðils sem tekur örum breytingum.
Með kraftmiklum glerungum, lifandi yfirborði leirsins og óvæntum skúlptúrískum formum skoða listamennirnir bæði samhengi og togstreituna milli notagildis og tjáningar, handverks og lista og á milli merkingarþunga hlutarins og hugmyndarinnar. Verkin bjóða gestum að nálgast og íhuga keramikvasann ekki aðeins sem auðmjúkt ílát, heldur sem vettvang fyrir sköpun, sjálfstjáningu, gjörninga og ekki síst þróun.
Listamenn sýningarinnar starfa á sviðum myndlistar, hönnunar og leirlistar á Íslandi. Þær vinna allar með keramikmiðilinn og á þessari sýningu takast þær á við hugtakið um vasann, hver á sinn hátt.
Listakonur:
Antonía Berg
Brák Jónsdóttir
Dagmar Atladóttir
Hanna Dís Whitehead
Hulda Katarína
Nína Óskarsdóttir
Sigurrós G. Björnsdóttir
Ylona Supèr
ENG
VASE/PHASE brings together a dynamic collection of contemporary ceramics that celebrate colour, form, and transformation. The exhibition highlights how the humble vessel long associated with tradition, function, and ritual continues to evolve as a site of artistic experimentation.
From bold glazes and vivid surfaces to unexpected shapes and sculptural reinterpretations, these works move fluidly between utility and expression. Each piece reflects a moment of transition: between craft and art, object and idea, vessel and sculpture.
VASE/PHASE invites viewers to consider the ceramic vessel not only as a container, but as a stage for creativity, identity, performance and evolution. The exhibition showcases works of eight, Iceland based artists, that all work within the medium of ceramics. The artists take on the concept of the VASE, each one reflecting in their own way on the status and phase the vase exists within.
Artists:
Antonía Berg
Brák Jónsdóttir
Dagmar Atladóttir
Hanna Dís Whitehead
Hulda Katarína
Nína Óskarsdóttir
Sigurrós G. Björnsdóttir
Ylona Supèr
