Valgerður Ýr Wanderhaug: Paradís

miðvikudagur, 26. ágúst 2026
Valgerður Ýr Wanderhaug: Paradís
Einkasýning í SÍM salnum 29. ágúst - 22. september 2026 Opnun er frá kl 14-16
VALGERÐUR ÝR WALDERHAUG
Abstrakt verk eru boðskort inn í óvissu þar sem form leysast upp og bera engin nöfn.
Undanfarin ár hefur Valgerður Ýr Walderhaug unnið með þrívíð málverk sem reyna á
tengslin milli skúlptúrs og málverks. Fyrir sýninguna í Sím salnum söðlar hún um og
einbeitir sér að málverkum á tvívíðum fleti.
Verkin á sýningunni samanstanda af akrýlmálverkum á striga og málverkum á pappír
þar sem blandað er saman akrýlmálningu og bleki. Litir og samspil þeirra gegna
mikilvægu hlutverki. Valgerður nálgast verkin sín að leikinni ónákvæmni og
skipuleggur sjaldan hvað hún mun mála heldur vinnur verkin eins og endalausa
tilraun þar sem allt er mögulegt. Titill sýningarinnar er vísun í löngun til að skapa verk
sem eru af ímynduðum heim.
Valgerður lauk BA námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2017 og
stundaði meistaranám við Glasgow School of Art í Skotlandi árin 2018-2019, síðar
við myndlistardeild Listaháskólans í Þrándheimi þaðan sem hún útskrifaðist árið
2021. Valgerður býr og starfar í Noregi og rekur vinnustofu í Tromsø. Hún hefur
hlotið fjölda verkefnastyrkja og starfslaun listamanna í Noregi og hefur jafnframt verið
virk í sýningarhaldi á Íslandi og meðal annars sýnt í Listasal Mosfellsbæjar, Gerðubergi og Gallerí Gróttu
