top of page

Upphaf - Innhaf - Úthaf í gallerí Fyrirbæri

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. janúar 2024

Upphaf - Innhaf - Úthaf í gallerí Fyrirbæri

Verið velkomin á opnun Upphaf - Innhaf - Úthaf einkasýning Chroma aka Huldu Hlínar, þann 13. janúar kl. 16:00 í gallerí Fyrirbæri á Ægisgötu 7, 101 Reykjavík.

Chroma (Hulda Hlín) opnar málverkasýningu sem ber yfirskriftina Upphaf - Innhaf - Úthaf með vísun í upphaf nýs árs og öldugang lífsins innra sem ytra.

Á sýningunni má meðal annars sjá ný verk en þau hafa þróast frá upphafi ferils en halda þó sínum sérkennum, einkennandi sterkum litum, kontrast, andstæðum og flæði. Í verkunum birtist hið frjálsa flæði sem einkennir verk listamannsins, hið gleðilega sköpunarstarf og kraftur innri veraldar og ytri heima. Flæðandi form, litagleði og nú fossandi listasamspil í samtali við vatnsflauminn og þyngdaraflið koma við sögu á sýningunni.

Verkin eru expressíf og formin minna stundum á lífverur og frumur. Hringformið kemur oft fyrir á mismunandi vegu. Við upphaf ferils listamannsins var fókusinn á ytri heima á borð við landslag og portrett, gjarnan í litsterkum expressivum stíl en landslagið liðaðist loks smám saman í sundur og úr urðu semiabstrakt og abstrakt flæðandi verk. Portrettið hefur komið við sögu og fylgir gjarnan með á einn eða annan hátt. Nú er nýtt upphaf og mun framtíðin leiða í ljós hvert sköpunin stefnir. Listamaðurinn leyfir listinni áfram að flæða í skapandi gleði.

Nánari upplýsingar hafið samband við listamann í síma: 8987701 og á vefsíðu listamannsins www.chroma.blue

Um listamanninn:

Chroma (Hulda Hlín) fæddist í Kaupmannahöfn og ólst þar upp fyrstu árin og síðar í París og loks Reykjavík. Chroma stundaði nám við listaakademíu Ítalíu í Róm, Accademia di belle arti, og útskrifaðist þaðan í listmálun (pittura) með hæstu einkunn og láði. Chroma hefur verið heilluð af litum frá barnæsku og er einnig með mastersgráðu í listfræði með lokaritgerð á sviði merkingafræði lita / merkingarfræði hins sjónræna. Chroma hefur haldið fjölda einka- og samsýninga bæði hérlendis og á Ítalíu.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page