top of page

Unnur Óttarsdóttir: Tengslavefir á Hlöðuloftinu

508A4884.JPG

fimmtudagur, 20. ágúst 2026

Unnur Óttarsdóttir: Tengslavefir á Hlöðuloftinu

Hlöðuloftið, Korpúlfsstaðir
Thorsvegi 1, 112 Reykjavík


Fimmtudaginn 27. ágúst kl. 18:00-20:00 opnar Unnar Óttarsdóttur sýninguna Tengslavefir á Hlöðuloftinu.
Öll velkomin. Opnunartími: 28.08 - 20.09.2026. Fimmtudaga – sunnudaga kl. 14 – 17.

Á sýningunni Tenglsavefir er ofið úr ósýnilegum tengslaþráðum. Innan rýmisins myndast þrívíður vefur þar sem einn þráður leggst yfir annan sem smám saman byggir upp heild. Speglaskúlptúrar, þátttökuverk, fundnir hlutir, textílverk, málverk og vídeóverk endurspegla ýmsar hliðar og mismunandi æviskeið myndlistarkonunnar. Unnur vefur úr þráðum sem liggja innra með henni og áhorfandanum. Verk eftir nemendur og fyrri þátttakendur í verkum hennar mynda einnig þræði í sýningarvefnum. Unnið er með tengsl á milli listakonunnar og áhorfandans, á milli manna, á milli einstaklinga og listaverka og samspili á milli verkanna sjálfra.

Unnur Óttarsdóttir (1962) er starfandi myndlistarmaður og listmeðferðarfræðingur og fjalla mörg verk hennar um tengingu á milli þessara tveggja faggreina. Unnur lauk MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2015 og doktorsprófi í listmeðferð frá University of Hertfordshire árið 2006. Listaverk Unnar hafa verið sýnd á hóp- og einkasýningum, m.a. á: Listasafninu á Akureyri, Listasafninu á Ísafirði, Listasafni Færeyja, Edsvik Kunstall í Stokkhólmi, Lorgo das Artes í Brasilíu og í Casa do Campo Pequeno í Portó í Portúgal. Ásamt því að vefa úr reynslu sinni og minningum í verkum sýningarinnar mun Unnur bjóða áhorfendunum að taka þátt listaverkunum. Samhliða sýningunni býður hún upp á vinnu- og rannsóknarstofur þar sem þátttakendur kynnast teikniaðferðum sem geta stuðlað að þeirra innri og ytri tengslavefum.

Vinnustofur og viðburðir:

1. Hæglætis lína. Hvernig getur línan veitt hvíld, frið og innsýn? Mánudagur 31. ágúst kl 18.30 – 20.00. Þörf á skráningu.

2. Speglunar samteikning. Hvernig getur teikning sem gerð er í tengslum við aðra styrkt sjálfið? Miðvikudagur 2. september kl 18.30 – 20.30. Þörf á skráningu.

3. Listamannaspjall. Unnur fjallar um tilurð verkanna á sýningunni. Sunnudagur 13. septmeber kl 15.00. Ekki þörf á skráningu.

4. Mandölugerð. Könnuð verður mandölugerð sem er ævaforn aðferð til að róa og mynda heild. Þriðjudagur 15. september kl 18.30 – 20.30. Þörf á skráningu.

Skráning á vinnustofur hér: https://forms.gle/ytHxt6bxovqGyoEA7


Texti Fernando José Pereira um sýninguna:
https://unnurottarsdottir.art/fernando_jose_pereira/

www.unnurottarsdottir.art

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.




Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page