top of page

Undrakonan ófullgerð

508A4884.JPG

fimmtudagur, 20. febrúar 2025

Undrakonan ófullgerð

Verkið Undrakonan er partur af sýningunni Vá! kona?!, sem nú stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Telma ætlar að opna litla "vinnustofu" í sýningarrýminu og vinna að fullgera Undrakonuna alla laugardaga frá 14:30-15:30 á meðan sýningunni stendur.

Verið hjartanlega velkomin að kíkja við og spjalla við Telmu og sjá sýninguna.

Sýningin samanstendur af ljósmyndum og er viðfangsefnið vangaveltum um konur og birtingarmynd þeirra í þjóðsögum.

Titill sýningarinnar er leikur að orðinu Vá sem við notum í daglegu tali til að tjá hrifningu okkar á einhverju en raunveruleg merking þess er hætta, ógn eða eitthvað vont. Vá! Kona?! er bein skírskotun í þá ógn sem talað er um í þjóðsögunum.

Telma Har (f.1985) býr og starfar í Reykjavík. Hún stundaði nám við Ljósmyndaskóla Reykjavíkur. Verkin hennar hafa verið sýnd víða á Íslandi og erlendis.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page