top of page

Umsóknarfrestur um bæjarlistamann Kópavogs til 16. apríl

508A4884.JPG

fimmtudagur, 13. apríl 2023

Umsóknarfrestur um bæjarlistamann Kópavogs til 16. apríl

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs.
Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi.

Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.

Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar. Í þeim skulu koma fram upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um með hvaða móti bæjarlistamaður hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa.

Hægt er að senda inn umsókn eða ábendingu fyrir 16. apríl á netfangið menning@kopavogur.is.

Frekari upplýsingar er að finna HÉR: https://menning.kopavogur.is/award_categories/baejarlistamadur-kopavogs/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page