Ummyndanir: Haraldur Jónsson valinn í Auglýsingahlé Billboard 2024
fimmtudagur, 2. nóvember 2023
Ummyndanir: Haraldur Jónsson valinn í Auglýsingahlé Billboard 2024
Billboard, sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og víða á höfuðborgarsvæðinu, efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallery. Dagana 1.– 3. janúar 2024 verður Auglýsingahlé á yfir 500 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmanninn Harald Jónsson sem valinn var úr hópi um 40 umsækjenda. Gaman er að segja frá því að sýning í þessari sýningarröð eftir listamanninn Hrafnkel Sigurðsson hlaut íslensku myndlistarverðlaunin fyrr á þessu ári.
Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Haraldar dag hvern í byrjun árs 2024.
Að sýningartíma loknum er verkið gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard.
Verkið verður sýnt á yfir 500 skjáum um alla borgina, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við fjölfarnar götur.
Valnefnd var skipuð skipuð fulltrúum frá Billboard, Listasafni Reykjavíkur, Y galleríi og SÍM.
Haraldur lýsir verkinu Ummyndanir svo:
Verkið hverfist um ummyndanir kunnuglegra fyrirbæra úr tíðarandanum sem líða síkvikar um loftið þegar heimurinn er tímabundið opinn í báða enda um áramót. Það er skuggsjá sem ofin er úr brotakenndum skilaboðum, hnitum,hugljómunum og óvæntum tilboðum úr undirvitundinni.
Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými. Því er ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina.