UMBROT – Samsýning

miðvikudagur, 28. maí 2025
UMBROT – Samsýning
Fimmtudaginn 29. maí kl. 17–19 verður sýningin UMBROT opnuð í Grafíksalnum.
Með fjölbreyttri nálgun á efnismeðferð og myndmáli hefja sex listakonur samtal sín á milli og eða við áhorfandann. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, sum brakandi fersk, önnur eiga sér lengri aðdraganda eða eru í umbreytingarferli.
Umbrot vísar til hreyfingar, þess augnabliks þegar eitthvað breytist, molnar, brestur eða tekur á sig nýja mynd. Það er hvorki upphaf né endir, heldur ástand í þróun.
Sýnendur eru:
Anna Snædís Sigmarsdóttir
Elísabet Stefánsdóttir
Elva Hreiðarsdóttir
Gunnhildur Ólafsdóttir
Soffía Sæmundsdóttir
Þórdís Elín Jóelsdóttir
Þær hafa allar langan feril að baki og hafa starfað saman innan félagsins Íslensk grafík
Sýningin stendur til 8. júní.
Opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14–17.
Aðgangur ókeypis. Öll hjartanlega velkomin.