top of page

Tvær sýningar opnaðar í Hafnarhúsi Höfuðskepnur og Erró: Remix

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. júní 2025

Tvær sýningar opnaðar í Hafnarhúsi Höfuðskepnur og Erró: Remix

Sýningarnar Höfuðskepnur og Erró: Remix verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, fimmtudag 5. júní kl. 20.00.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, opnar sýningarnar og veitir viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sjóðnum er ætlað að efla listsköpun kvenna.

Um Höfuðskepnur
Að fornu var efnisheimi jarðar skipt í fjögur frumefni: Jörð, vatn, loft og eld. Sú kenning ljær sýningunni yfirskriftina, Höfuðskepnur.

Hér eru kynnt nýleg verk samtímalistamanna sem kalla með ólíkum hætti fram hugrenningartengsl við þessa frumkrafta náttúrunnar. Breytingar í umhverfinu eru til skoðunar í verkum sex listamanna sem beina sjónum að ummyndun ólífræns efnis, eins og bráðnun, storknun, uppgufun og kristöllun. Umfang og hröðun náttúrulegra ferla allt í kring minna okkur á að veröldin er á heljarþröm. Hvert stefnir og hvað tekur við?

Sýningin er hluti af stærra verkefni. Árið 2024 tók Listasafn Reykjavíkur fyrir hönd Reykjavíkurborgar þátt í samstarfi við Ósló í Noregi og í Cluj-Napoca í Rúmeníu tengt Loftslagsborgum Evrópu. Markmiðið var að skiptast á hugmyndum um það hvernig hvetja mætti ungt fólk til vitundar og samtals um loftslagsmál í gegn um myndlist, listsköpun og -upplifun. Þáttur í framlagi Listasafns Reykjavíkur er spennandi fræðsluverkefni í sumar. Safnið tekur á móti nemendum Vinnuskóla Reykjavíkur í Hafnarhúsi, einum hópi á dag, þar sem þau fá tækifæri til þess að njóta lista, fara í leiki, skapa eigin verk og eiga í fjörugum samræðum. Verkefninu lýkur með uppsetningu sýningar í fjölnotasal á afrakstri verkefnisins á Menningarnótt. Sýningin Höfuðskepnur er lykilþáttur í heimsókn ungmennanna.

Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Alessa Brossmer, Hrafnkell Sigurðsson, Jóhanna Bogadóttir, Ragna Róbertsdóttir, Rúrí og Þorbjörg Jónsdóttir.

Um Erró: Remix
Erró (f. 1932) er á meðal þeirra íslensku listamanna sem náð hafa fótfestu í heimi alþjóðlegrar myndlistar. Hann hlaut fyrr á þessu ári heiðursviðurkenningu myndlistarráðs.

Listasafn Reykjavíkur varðveitir heilstætt safn verka eftir listamanninn og er Hafnarhús vettvangur reglulegra sýninga á verkum hans. Þessi yfirlitssýning endurspeglar litríkan ferli listamannsins en á löngum ferli hefur hann fengist við ýmsa miðla myndlistarinnar. Þar má finna allt frá gjörningum, vídeólist, grafík, fjölfeldi og klippimyndum, til stórra verka í almannarými og málverka á öllum skala, sem hafa unnið honum verðugan sess í evrópskri listasögu.

Á þessari sýningu verða helstu verk listamannsins og tækifæri til að kynnast ólíkum viðfangsefnum hans svo sem ádeilu á neyslusamfélagið, pólitísk deilumál og þá ofgnótt upplýsinga sem einkennir nútíma samfélag.

Myndverk: Hrafnkell Sigurðsson, Loftnet 423 / Aerials 423, 2025

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page