top of page

TORG Listamessa 2023 - Kynning á listamönnum

508A4884.JPG

föstudagur, 15. september 2023

TORG Listamessa 2023 - Kynning á listamönnum

TORG – Listamessa í Reykjavík verður haldin í fimmta sinn dagana 6.–15. október 2023 á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum.

TORGið er einn stærsti kynningar – og söluvettvangur myndlistar á Íslandi. Yfir 60 listamenn taka þátt á listamessunni í ár sem stendur yfir tvær helgar í röð.

Listamessan er einstakur vettvangur þar sem hægt er að kynna sér íslenska samtímalist og kaupa listaverk beint af listamönnunum sjálfum. Þátttakendur koma úr öllum listgreinum SÍM, en þar verða meðal annars til sýnis málverk, skúlptúrar, grafíkverk, ljósmyndir og textíll.

Eins og í fyrra var ákveðið að tileinka einn vegg listamönnum sem eru með vinnustofur hjá SÍM, en í þetta sinn var listamönnum á Hólmaslóð boðið að taka þátt.

Útskriftarnemendur frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands verða einnig með sameiginlegan bás á listamessunni í ár.

Sýningarstjóri TORGsins 2023 er Ægis Zita.

TORG listamessa er skipulögð af SÍM, Sambandi Íslenskra Myndlistarmanna, með stuðningi frá Reykjavíkurborg.

Listamenn / Artists:

Aldís Ívarsdóttir
Áslaug Saja Davíðsdóttir
Bjarni Ólafur Magnússon
Björk Tryggvadóttir
Bryndís Brynjarsdóttir
Dagmar Agnarsdóttir
Dagný Guðmundsdóttir
Einar Lúðvík Ólafsson
Elín Rafnsdóttir
Elínborg Jóhannesdóttir Ostermann
Erlingur Jón Valgarðsson
Guðrún Benedikta Elíasdóttir
Hallsteinn Sigurðsson
Hjörtur Hjartarson
Hlynur Helgason
Ingibjörg Hauksdóttir
Izabela Hadrian
Jakob Jóhannsson
Jelena Antic
Jóhanna Halldórsdóttir
Jóhanna Margrétardóttir
Kristín Tryggvadóttir
Laufey Johansen
María Manda Ívarsdóttir
Ólöf Rún Benediktsdóttir
Ólöf Birna Blöndal
Ólöf Björg Björnsdóttir
Otilia Martin
Rán Jónsdóttir
Rossana Silvia
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
Soffía Sæmundsdóttir
Þóra Gunnarsdóttir
Þorgerður Jörundsdóttir
Thorunn Björnsdóttir
Veronika Katri

Íslensk Grafík / The Icelandic Printmaking Association
Anna Snædís Sigmarsdóttir
Beta Gagga / Elísabet Stefánsdóttir
Góla / Gunnhildur Ólafsdóttir
Gunnhildur Þórðardóttir
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
María Sjöfn Dupuis Laufeyjardóttir
Marilyn Herdís Mellk
Valasín / Valgerður Björnsdóttir
Þórdís Elín Jóelsdóttir

Myndhöggvarafélagið / Reykjavík Sculpture Association
Alexander Zaklynsky
Anna Eyjólfs
Edda Þórey
Freyja Eilíf
Greta Vazhko
Habbý Ósk
Hannes Lárusson
Hjörtur M. Skúlason
Hulda Vilhjálmsdóttir
Logi Bjarnason
María Sjöfn Dupuis Laufeyjardóttir
Oliver Benonysson
Ragnhildur Stefánsdóttir
Sigrún Harðardóttir
Sólveig Thoroddsen
Unnur Leyfsdóttir
Þórdís Alda Sigurðardóttir

Listaháskóli Íslands / Iceland University of the Arts
Jóhanna Margrétardóttir
Jón Múli
Herdís Þorvaldsdóttir
Sindri Dýrason
Steinn Logi Björnsson

Hólmaslóð
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir
Halldóra Emilsdóttir
Ósk Gunnlaugsdóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page