top of page

The Factory í Djúpavík: Að nálgast hið ókomna

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. maí 2026

The Factory í Djúpavík: Að nálgast hið ókomna

The Factory í Djúpavík: Að nálgast hið ókunna

Verið velkomin á listasýninguna The Factory, Að nálgast hið ókunna í gömlu
síldarverksmiðjunni í Djúpavík, sem opnar 23 maí, 2026 kl. 17:00-22.00.
Sýningin stendur yfir frá 23 maí til 11 september, og er opin daglega á milli
10:30 - 18:00.

Tíunda útgáfa The Factory, Að nálgast hið ókunna beinir sjónum að tengslum –
ferlinu við að reyna að brúa bil – þar sem staðbundin list leitar leiða til að bæði fanga
og afhverfa stað. Hvað kemur fram þegar staðsetningin er ekki aðeins tilfallandi skel
utan um listina heldur skapari hennar og samstarfsfélagi sem stendur jafnfætis
listamanninum?

Listamennirnir voru beðnir um að staðsetja eigin heima og list í ríki Djúpavíkur – og
Íslands í víðara samhengi – og skoða tengsl og samfestu á milli fólks, staða, efnis og
tíma. Í þessu ferli er hið gagnstæða þegar alltaf til staðar: rof, samhengisleysi, firring.
Staðurinn og listin kallast á, upplýsa og hafa áhrif hvort á annað, huga jafnvel hvort
að öðru, í flæði milli samhljóms og ósamræmis, en sem jafningjar í sköpun, hvort
sem vitandi sé gengist við staðnum eða ekki.
Verk listamannanna spanna rýmið milli samtíðar og fortíðar, í samhljómi og árekstri
við gamla steypu verksmiðjunnar og ævarandi náttúrunnar allt um kring, þau
skrásetja og taka á sig birtingarmyndir nýrra sanninda um Djúpavík.
Djúpavík umbreytist í bræðing, samsuðu af stöðugum mótsögnum.

The Factory er partur af Listahátíð í Reykjavík, sem fer fram dagana 30. maí til 14
júní.

Opnun: 23 maí, kl. 17:00-22:00. Sonja Strange mun flytja gjörning.

Listamenn: Abigail Portner (US), April Dobbins (US/IS), Darja Shatalova (RU/AU),
Gabriel Dawe (US/MEX), Hildur Henrýsdóttir (IS), Olivia Lloyd-Sherlock Arribas
(UK/ESP), Patty Spyrakos (US/IS), Shana de Villiers (NL/ZA), Sonja Strange (DK),
Sóley Ragnarsdóttir (DK/IS), Viðar Logi (IS/US)
Sýningarstjóri: Emilie Dalum
Haldið af: Hótel Djúpavík
Styrktar- og samstarfsaðilar: Uppbyggingarsjóður Vestfjarða, Myndlistarsjóður,
Orkubú Vestfjarða, Listahátíð í Reykjavík, Hótel Djúpavík, Ljósmyndaskólinn.
Fylgdu sýningunni hér: @djupavikart

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page