top of page

Textílfélagið: STAÐUR

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. júlí 2026

Textílfélagið: STAÐUR

Sýning Textílfélagsins, Staður, opnar í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu (hafnarmegin),
fimmtudaginn 30. júlí kl 18-20

Sýningin stendur til 16. ágúst, opið fimmtudaga - sunnudaga kl 13-18.

Öll hjartanlega velkomin.

Samgöngur og nútíma fjarskipti hafa umbreytt skynjun okkar á fjarlægðum. Allt virðist innan seilingar og á sama tíma hefur einsleitni aukist. Rýmið sem við lifum í nú er því skilgreint á annan hátt en áður. Sýningin rannsakar hugtakið staður með áherslu á liti og efniskennd. Hver listamaður vinnur út frá sínum eigin hugarheimi og spyr: Hvað er rými og hvað er staður? Hvernig getur textíll vakið tilfinningar eða minningar tengdar ákveðnum stöðum? Verk sýningarinnar varpa ljósi á tengsl einstaklingsins við umhverfi, uppruna, minningar og menningu. Með efni, þræði, mynstri, áferð og handverki skapa listamennirnir persónulegar túlkanir á hugtakinu Staður.

Á sýningunni sýna 10 meðlimir Textílfélagsins verk sín:

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
Ásta Kristín Knight Þorsteinsdóttir
Bára Finnsdóttir
Bethina Elverdam Nielsen
Drífa Líftóra
Katalin Fóris
Olga Bergljót Þorleifsdóttir
Rósa Sigrún Jónsdóttir
Sunneva Ósk Jónasdóttir
Þorbjörg Þórðardóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page