top of page

Telma Har: Sjúkleg Streita

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. maí 2026

Telma Har: Sjúkleg Streita

Sýning Telmu Har Sjúkleg Streita er í Sind gallery, Hringbraut 122, 101 Reykjavík. Opnaði 10. Apríl og stendur til 16. maí.
Opið miðvikudag-föstudag 13-18 og laugardag 12-17.

Við bjóðum ykkur velkomin á opnun sýningar Telmu Har, Sjúkleg Streita, í SIND gallery föstudaginn 10. apríl.

Telma hefur stundað nám við Ljósmyndaskólann og tekið þátt í sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hún vinnur með ljósmyndir í formi klippimynda, stafrænna miðla og skúlptúr, þar sem hún leggur áherslu á rannsókn á sjálfsmynd og tengslum innri upplifunar og sjónrænnar framsetningar.

Innblástur sækir hún í persónulega reynslu af álagi, umönnun og tilfinningalegri togstreitu. Í verkunum kannar hún mörkin á milli styrks og viðkvæmni, sem og þá oft ósýnilegu vinnu sem felst í ábyrgð og umhyggju. Þessi þemu birtast bæði beint og í
myndlíkingum, þar sem súrrealísk nálgun fær að móta veruleikann og endurspegla hið innra frekar en ytri staðreyndir.

Sýningin byggir á persónulegri reynslu af álagi, kvíða, kulnun og andlegu áfalli. Hún sprettur úr því að reyna að halda jafnvægi á milli margra krefjandi hlutverka: að vera í sambandi við maka sem glímir við alkóhólisma, að ala upp barn með fötlun, að fylgja dóttur inn í unglingsárin, að sinna fullu starfi og námi. Þetta eru aðstæður sem fléttast saman og mynda ástand stöðugrar spennu, þar sem mörkin milli styrks og viðkvæmni verða óljós

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page