top of page

Tópógrafíur – Korkimon

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. júní 2025

Tópógrafíur – Korkimon

HERMA og Korkimon bjóða ykkur velkomin á opnun sýningarinnar ‘Tópógrafíur’ föstudaginn 6. júní næstkomandi klukkan 17. Sýningin er níunda einkasýning Korkimon.

Til sýnis verða collage-myndir, blanda af ljósmyndum, mótuðu snæri, tvinna og garni með sporfestingum – aðskildum en tengdum. Titill sýningarinnar vísar í gríska uppruna orðsins topographia (topos: staður, graphein: að skrifa eða teikna). Verkin sýna niðurrif og uppbyggingu, og skapa líkamlegar og huglægar tópógrafískar bújarðir úr skörpum formum sem hafa þó mótast að myndinni.

Sýnileg spor og þræðir eru lagðir ofan á myndflötinn með tímabundnum festingum sem á leið sinni hafa dregið með sér ryk, trefjar og ummerkisleifar. Fortíðin er fest, sýnileg og verður ekki breytt, því engin umbreyting er algjör. Hún ber með sér ummerki þess sem var rifið í sundur til að skapa eitthvað nýtt. Þrátt fyrir að vera eftirlíking halda þær fullkominni mynd af raunveruleikanum þar sem teipið virðist enn upplyft, þræðirnir eru áþreifanlegir og saumaskapurinn líkamlegur. Þessi tvíræðni, trompe-l’œil áhrifin, varpa ljósi á hugmyndir um nálægð og fjarlægð, skynjun og raunveruleika.

Opnunin stendur yfir milli klukkan 17–19. Öll velkomin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page