top of page

Tíminn líður hratt á gervigreindaröld - Málþing um gervigreind og höfundarétt

508A4884.JPG

fimmtudagur, 21. september 2023

Tíminn líður hratt á gervigreindaröld - Málþing um gervigreind og höfundarétt

Þann 29. september n.k. frá 13:00-17:00 verður haldið málþing um gervigreind og höfundarétt. Verður þar boðið upp á fyrirlestra og hringborðsumræður með kunnáttufólki á sviðum tækni, fræða, lista og laga. Markmið málþingsins er ekki að tala niður eða hafna gervigreind, heldur að varpa fram spurningum og fræðast um möguleg framtíðaráhrif hennar á skapandi greinar.

Eftirfarandi samtök og stofnanir standa að málþinginu: STEF, Myndstef, Rithöfundasambandið, Hagþenkir, Blaðamannafélagið, Félag leikstjóra á Íslandi, Samtök kvikmyndaleikstjóra, Félag kvikmyndagerðarmanna, Félag leikskálda og handritshöfunda, SÍM (Samband íslenskra myndlistarmanna), Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst.

Hlynur Helgason, varaformaður SÍM, dósent í listfræði við Háskóla Íslands og myndlistarmaður verður með fyrirlestur um sjálfvirka myndvinnslu – verkan og álitamál, og Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, lýsingahönnuður og formaður stjórnar MH&A og formaður Félags húsgagna- og innanhúsarkitekta, sem og Björg Ingadóttir, framkvæmdarstjóri Spaksmannsspjara, hönnuður og kennari við LHÍ, munu sitja í panel á málþinginu.

Miðasala er í gegnum tix.is. Miðaverði verður stillt mjög í hóf; aðeins 2.500 kr.

Gervigreind hefur verið í umræðunni um árabil og reglulega berast fregnir af framþróun og aukinni úbreiðslu hennar hvarvetna. Sér í lagi hefur listsköpun verið í kastljósinu undanfarið, eftir því sem tækni hefur fleygt fram og notkun gervigreindar aukist hröðum skrefum á hinum ýmsu sviðum skapandi greina.

Samhliða þessu hafa eðlilega vaknað áleitnar spurningar, einkum varðandi hagnýtingu og höfundarétt varnings og verka sem til verða með atfylgi eða milligöngu gervigreindar, ekki síst með hliðsjón af listaverkum sem notuð eru til „þjálfunar“ gervigreindar.

Á meðan þingið stendur yfir verður boðið upp á kaffi, te, vatn og bakkelsi. Að þingi loknu verða léttar veitingar í boði.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page