top of page

Sunna Dögg Ásgeirsdóttir - Ilmur í tvívídd

508A4884.JPG

miðvikudagur, 28. maí 2025

Sunna Dögg Ásgeirsdóttir - Ilmur í tvívídd

Sunna Dögg Ásgeirsdóttir opnar sýningu sína Ilmur í tvívídd // Scent in 2D í Gallerí Gróttu miðvikudaginn 28. maí kl. 17.

Sunna Dögg er þverfaglegur hönnuður og listakona og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir hönnun sína, jafnt innanlands sem utan og hefur verið fjallað um hana í virtum tísku- og hönnunartímaritum á borð við og ítalska Vogue, Papier Mache, Luna og fleirum.

Á sýningu sinni Ilmur í tvívídd sýnir Sunna olíumálverk máluð á fínofin bómullarstriga og leirmuni úr postulínsleir. ,,Þar sem málverkin hafa yfir sér ákveðna værð fannst mér vanta eitthvað til að ,,poppa” þau upp. Postulíns pylsur, kleinur, kleinuhringir og Candyfloss fá því sitt hlutverk og færa smá húmor inn í sýningarrýmið.”

,,Ég á tvær einhverfar dætur sem hafa gefið mér nýja og töfrandi sýn á heiminn og
tilveruna. Það er sýn dætra minna á heiminn og samfélagsins á þeim sem ég velti hér fyrir mér og spegla á minn hátt."...

Sunna hefur um nokkurt skeið unnið með hugtakið “Ímyndaðir vinir” í ólíkum miðlum og verkin á sýningunni Ilmur í tvívídd í Gallerí Gróttu eru sjálfstætt framhald af þeirri vinnu. Hún skoðar einstaklinginn og líðan hans. Mannlega tilvist og tengslamyndun í efnislegum heimi.

Sýningu lýkur 20. júní 2025.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page