top of page

SUMARNÁMSKEIÐ Textílfélagsins: Munsturgerð, körfugerðarnámskeið og námskeið í jurtalitun og bókagerð

508A4884.JPG

fimmtudagur, 8. júní 2023

SUMARNÁMSKEIÐ Textílfélagsins: Munsturgerð, körfugerðarnámskeið og námskeið í jurtalitun og bókagerð

Textílfélagið býður upp á fjögur skemmtileg námskeið í júnímánuði. Námskeiðin henta bæði þeim sem hafa þekkingu á textílgerð sem og byrjendum. Allir kennararnir eru sérfræðingar á sínu sviði og verða öll námskeiðin haldin á Textílverkstæðinu á Korpúlfsstöðum.

Námskeiðin fjögur eru: munsturgerð, tvö ólík körfugerðarnámskeið og þriggja daga námskeið í jurtalitun og bókagerð.

18.júní
Munsturgerð - skráning

Farið verður yfir helstu tegundir mynstra og hvernig skal búa þau til með lagskiptingu í brennipunkti til að ná fram dýpt og góðu flæði. Þá verður lögð sérstök áhersla á silkiþrykksaðferðina og hvernig sé best að ná að skapa mynstur í ramma.

Kennari: Drífa Líftóra Thoroddsen

20.-22.júní
Jurtalitun og bókagerð - skráning

Nemendur læra um grunnatriði jurtalitunar. Íslenskar jurtir verða notaðar til að lita ullargarn og munu nemendur einnig læra að nota hjálparefni sem gefa mismunandi tóna.
Í lok námskeiðsins fá nemendur prufur af öllu því sem þeir hafa litað á námskeiðinu.
Einnig verður kennd bókagerð þar sem nemendur læra að brjóta og sauma nokkrar mismunandi gerðir bóka. Hugmyndavinna og skissugerð verður unnin með jurtalit og bleki, handgerðum penslum og einföldum áhöldum á pappír, sem verður notaður í bækurnar.

Kennarar: Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir

26.júní
Rammakörfugerð - skráning
Körfur fléttaðar með þessari aðferð eru oft kallaðar rammakörfur eða eggjakörfur. Þetta er hefðbundin aðferð við körfugerð, sem nota má á til þess að flétta eða vefa fjölbreyttar körfur og því skemmtilegt að kunna.
Á þessu námskeiði nýtum við eingöngu efniviði úr okkar nærumhverfi. Rætt verður um efnisöflun og kennt að flétta körfu úr greinum og melgresi.
Kennari: Guðrún Pétursdóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page