top of page

Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríkisdóttur óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum

508A4884.JPG

mánudagur, 26. október 2026

Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríkisdóttur óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum

Samkvæmt stofnskrá sjóðsins eru styrkir veittir efnilegu ungu myndlistarfólki. Fyrst var veitt úr sjóðnum árið 1995 og til þessa hafa 22 myndlistmenn notið styrks úr sjóðnum. Að þessu sinni verður úthlutað 1 milljón króna til eins styrkþega. Eftirfarandi upplýsingar og gögn skal senda á umsokn@listasafn.is; nafn og kennitala umsækjanda, heimilsfang, netfang og símanúmer. Ítarlegar upplýsingar um námsferil, ásamt suttri greinagerð um listferil þar sem helstu áherslur í listsköpun umsækjanda er lýst, ásamt nokkrum ljósmyndum af verkum.

Valnefnd sem skipuð fulltrúum Listasafns Íslands, Listaháskóla Íslands og Sambands íslenskra listamanna fer yfir og metur innsendar umsóknir.

Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember og úthlutun fer fram á afmælisdegi Svavars Guðnasonar, þann 18. nóvember næstkomandi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page