top of page

Stofnun Wilhelm Beckmann: Opið fyrir umsóknir um styrki

508A4884.JPG

mánudagur, 17. október 2022

Stofnun Wilhelm Beckmann: Opið fyrir umsóknir um styrki

Stofnun Wilhelms Beckmann, sem starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 790/2013, auglýsir eftir umsóknum um starfslaun/styrk frá ungum myndlistamanni/-mönnum (yngri en 35 ára) skv. reglum þar að lútandi en þar segir:

Styrki/starfslaun er heimilt að veita myndlistarmanni/-mönnum sem starfa að höggmyndalist, tréskurðarlist og annarri mótunarlist (skúlptúr), listteikningu, listskrift, málaralist, listrænni ljósmyndun, grafíklist, þráðlist (textíllist) og leirlist (keramík).

Heildarfjárhæðin, 2,5 milljónir króna, jafngildir starfslaunum í þrjá til sex mánuði eftir því hvort einn eða fleiri styrkir eru veittir.

Þriggja manna matsnefnd fer yfir umsóknir og mælir með einum eða fleiri umsækjendum. Stjórn Stofnunar Wilhelms Beckmann tekur endanlega ákvörðun um styrkþega. Listamennirnir eiga eignar- og höfundarrétt verka sinna.

Umsóknir með ferilsskrá og greinargóðri lýsingu á verkefni/verki sem umsækjandi hyggst vinna að, hvar/hvenær, skulu berast til gerdarsafn@kopavogur.is fyrir kl. 12 á hádegi 3. nóvember 2022.

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Wilhelm Ernst Beckmann (1909-1965) var fyrsti bæjarlistamaður Kópavogs. Hann kom til Íslands
árið 1935 á flótta frá Hitlers-Þýskalandi og settist hér að. Hann vann um árabil við útskurð og skúlptúragerð, málaði og teiknaði myndir og
vann við grafíska hönnun. Eftir hann liggja margvísleg tréskurðarverk, mörg með trúarlegri skírskotun, og smærri hlutir úr tré, beini, horni og
silfri.

Börn Wilhelms og Valdísar Einarsdóttur höfðu frumkvæði að því að Stofnun Wilhelms Beckmann var sett á laggir árið 2013 til að kynna listamanninn, halda nafni hans á lofti og styrkja efnilega myndlistarmenn til verka.

Bókin Beckmann, um ævi og feril listamannsins, kom út haustið 2020. Gert er ráð fyrir því að á árinu 2023 verði ný heimildamynd um Beckmann sýnd á RÚV.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page