top of page

Stockfish Film Festival: Opið fyrir umsóknir í stuttmyndasamkeppni Stockfish

508A4884.JPG

föstudagur, 21. janúar 2022

Stockfish Film Festival: Opið fyrir umsóknir í stuttmyndasamkeppni Stockfish

Aldrei veglegri verðlaun í boði á kvikmyndahátíð á Íslandi!

Sprettfiskur, í samvinnu við Símann og Kukl, haldinn á fjórum keppnisbrautum!
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í áttunda sinn dagana 24. mars - 3. Apríl 2022. Umsóknarfrestur stendur til 10. febrúar næstkomandi.

Keppt verður í fjórum flokkum og mun sigurvegari hvers flokks hljóta verðlaun að verðmæti allt að 2ja milljóna kr. Markmið keppninnar er að vekja athygli á hæfileikaríku og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með veglegum verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni.
Sprettfiskur á fjórum keppnisbrautum, í samvinnu við Kukl og Símann!
Talsverðar breytingar eru á Sprettfisk 2022 með það að markmiði að þjóna og vekja athygli á breiðari hópi kvikmyndagerðafólks og kvikmyndaverka.
Sprettfiskur verður haldinn á fjórum keppnisbrautum þar sem stutt skáldverk, heimildaverk, tilraunaverk og tónlistaverk eru aðskilin. Fimm verk verða valin úr innsendingum til að keppa í hverjum flokki fyrir sig. Sigurvegarar hverrar brautar hljóta verðlaunafé í boði Símans og úttekt hjá tækjaleigu Kukl.

1 - Skáldverk
Verðlaunafé: 1.000.000kr
Tækjaleiga: 1.000.000kr
2 - Heimildarverk
Verðlaunafé: 500.000kr
Tækjaleiga: 500.000kr
3 - Tilraunaverk
Verðlaunafé: 250.000kr
Tækjaleiga: 250.000kr
4 - Tónlistaverk
Verðlaunafé: 250.000kr
Tækjaleiga: 250.000kr

Nánari upplýsingar um umsóknarskilyrði og þátttökufrest er að finna á www.stockfishfestival.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page