STILLUM SAMAN STRENGI Átak um ábyrga notkun gervigreindar

fimmtudagur, 5. nóvember 2026
STILLUM SAMAN STRENGI Átak um ábyrga notkun gervigreindar
16. nóvember 2026 kl. 17:00 í Norræna húsinu
Á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, hrindir Bandalag íslenskra listamanna af stað átakinu STILLUM SAMAN STRENGI með útgáfuhófi í Norræna húsinu. Þar verða kynnt og gerð aðgengileg til dreifingar tilmæli BÍL um ábyrga notkun gervigreindar.
Markmið tilmælanna er að skapa jafnvægi milli tækniþróunar og nýsköpunar sem og virðingar fyrir höfundarrétti og forsendum mannlegrar sköpunar. Þeim er ætlað að leiðbeina opinberum aðilum, stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum um ábyrga notkun gervigreindar. Sérstök áhersla er lögð á vernd höfundarréttar, að notkun verka og flutnings byggist á viðeigandi heimildum og að listafólk og höfundar njóti sanngjarnra kjara og þóknunar. Þannig er stuðlað að ábyrgri notkun gervigreindar, um leið og vernd mannlegrar sköpunar og sjálfbærni í listum og menningu er höfð að leiðarljósi.
Á næstu dögum verða einnig birt kynningarmyndbönd og greinar í fjölmiðlum þar sem ólíkir einstaklingar varpa frekara ljósi á málefnið. Með átakinu vill BÍL vekja athygli á mikilvægi höfundarréttar, virðingu fyrir listafólki og vernd mannlegrar sköpunar og stilla saman strengi með þjóðinni um ábyrga notkun gervigreindar.
Dagskrá
17:00–17:10 | STILLUM SAMAN STRENGI – HÖFUM HÁTT Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM) leikur undir stjórn Inga Garðars Erlendssonar.
17:15–17:25 | Opnunarávarp Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
17:25–17:35 | Ávarp Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
17:35–17:50 | Hugvekja Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari.
Kynnir: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna.
Boðið verður upp á léttar veitingar og hægt verður að næla sér í eintak af tilmælum BÍL um ábyrga notkun gervigreindar, fallegan fjölnota poka og límmiða með listaverki eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur.
Öll velkomin.
TUNE OUR STRINGS TOGETHER
An initiative for the responsible use of artificial intelligence
16 November 2026 at 17:00 at the Nordic House in Reykjavík
On Icelandic Language Day, 16 November, the Icelandic Artists’ Association will launch its STILLUM SAMAN STRENGI campaign with a launch event at the Nordic House in Reykjavík. The event will introduce BÍL’s recommendations for the responsible use of artificial intelligence and make them available for distribution.
The aim of these recommendations is to strike a balance between technological development and innovation, while ensuring respect for copyright and the foundations of human creativity. They are intended to guide public authorities, institutions, businesses and organisations in the responsible use of artificial intelligence. Particular emphasis is placed on the protection of copyright, ensuring that the use of works and performances is based on appropriate authorisation, and that artists and authors receive fair terms and remuneration. In this way, the recommendations promote the responsible use of artificial intelligence while safeguarding human creativity and supporting sustainability in the arts and culture.
Over the coming days, campaign videos and media articles will also be published, featuring a range of individuals who will shed further light on the issue. Through this campaign, BÍL aims to raise awareness of the importance of copyright, respect for artists, and the protection of human creativity, and to bring people together around the responsible use of artificial intelligence.
Programme
17:00–17:10 | TUNE OUR STRINGS TOGETHER – LET’S MAKE SOME NOISE! A performance by the West Reykjavík and Central Reykjavík School Band (SVoM), conducted by Ingi Garðar Erlendsson.
17:15–17:25 | Opening address Halla Tómasdóttir, President of Iceland.
17:25–17:35 | Address Logi Már Einarsson, Minister of Culture, Innovation and Higher Education.
17:35–17:50 | Reflections Ævar Þór Benediktsson, author and actor.
Host: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, President of the Federation of Icelandic Artists.
Light refreshments will be served, and guests will be able to pick up a copy of BÍL’s recommendations on the responsible use of artificial intelligence, as well as a beautiful reusable bag and stickers featuring artwork by Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
All are welcome.
