top of page

Stiklur/Sticks - Gunnhildur Þórðardóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 26. október 2023

Stiklur/Sticks - Gunnhildur Þórðardóttir

Stiklur/Sticks - Gunnhildur Þórðardóttir 26. október -12. nóvember 2023 í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu.

Á sýningunni Stiklur með verkum eftir Gunnhildi Þórðardóttur eru ný verk bæði tví – og þrívíð verk auk þess eldri verk sem fá að slæðast með. Á sýningunni er stiklað á stóru varðandi umhverfisvitund auk þess sem verkin eru eins konar stiklur eða brot eða bútar af íslenskri náttúru. Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hnattræn hlýnun og hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr brotum, bútum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk s.s. gömul húsgögn, geymslukassar, gardínur eða listaverk.

Gunnhildur Þórðardóttir er með MA í liststjórnun, tvíhliða BA nám sagnfræði (listasögu) og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge UK og viðbótardiplóma í listkennslu bæði fyrir grunn - og framhaldsskóla frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur starfað við kennslu síðan 2014 og starfað í rúm tíu ár fyrir listasöfn bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður í tuttugu ár og unnið trúnaðarstörf fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og félagið Íslensk grafík.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page