top of page

Steingrímur Gauti: Lingering Space

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. mars 2024

Steingrímur Gauti: Lingering Space

Laugardaginn 16. mars kl. 15:00 opnar sýningin Lingering Space með verkum eftir Steingrím Gauta Ingólfsson.

Steingrímur Gauti nálgast málverkið af einstakri alúð og léttleika. Hann treystir á ferlið, lætur viljandi af stjórn og leyfir verkinu að verða til. Fyrir honum er listsköpun eðlislægt og líkamlegt ferli, fremur en vitsmunalegt. Ónákvæmni, endurtekning og höfnun gagnrýnnar hugsunar einkenna vinnubrögð hans og útkoman ber þess jafnan merki, þar sem verkin dansa á línu þess ljóðræna og barnslega. Hið daglega sköpunarferli er hans leið til íhugunar og hugleiðslu.

Verk hans eru á mörkum þess að vera tjáningarík og jarðbundin, þau fanga kjarna hversdagslífsins og náttúrunnar. Hver pensilstrokan er þrungin líkamleika og ákveðni, hann byggir nostursamlega hvert málningarlagið á fætur öðru og afhjúpar faldar teikningar og merki sem undirstrika áhuga hans á ferlinu.

Lingering Space afhjúpar samræðu innra sjálfs Steingríms Gauta við heiminn í kringum hann og býður áhorfendum að kanna sínar eigin tilfinningar og innsæi og uppgötva fegurðina í hversdeginum.

Steingrímur Gauti Ingólfsson (f. 1986) lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2015 og hefur verið virkur á listasviðinu síðan. Hann hefur tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis og haldið nokkrar einkasýningar, þar á meðal sýninguna „Chop Wood, Carry Water “ í Marguo-galleríinu í París. Verk Gauta má finna í opinberum söfnum og í einkaeigu í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Steingrímur Gauti býr og starfar í Reykjavík.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page