top of page

Stúdía samsýning í Galleri Stofu

508A4884.JPG

fimmtudagur, 26. nóvember 2026

Stúdía samsýning í Galleri Stofu

Gallerí Stofa á vegum Ópus Reykjavík opnar 11. desember 17 - 19

Sýningin Stúdía setur sköpunarferlið í samtímamyndlist í forgrunn. Athugun, endurtekning og forvitni gegna þar mikilvægu hlutverki, enda getur sköpunin tekið óvænta stefnu þegar hugmyndir fylgja ekki fyrirfram ákveðinni áætlun og skipulagi. Stúdía varpar ljósi á hvernig innsæi og rútínur geta orðið uppspretta nýrra hugmynda. Í endurtekningunni skapast svigrúm fyrir tilraunir, tilviljanir og óvæntar uppgötvanir.

Á sýningunni koma saman átta listamenn sem vinna með fjölbreytta miðla, efnivið og aðferðir. Viðfangsefni þeirra eiga meðal annars rætur í persónulegri reynslu, minningum, sjálfsmynd og kynhlutverkum, náttúru og ímyndunarafli. Í listsköpun þeirra fléttast saman hversdaglega athuganir, tengsl við umhverfið og leit að nýjum möguleikum í efni og formi. Fjölbreyttar nálganir sameinast í forvitninni um það sem getur orðið til í sköpuninni sjálfri.

Opnunartímar eru: 11 des, 17:00-19:00, 12 des, 15-17, 19. Des, 15:00-17:00 Sýningartexti, eftir Línu Rut Árnadóttur:

ENG

The Study places the creative process in contemporary art at the forefront. Observation, repetition and curiosity play an essential role, as the creative process can take an unexpected turn when ideas do not follow a predetermined plan or structure. The Study highlights how intuition and routines can become sources of new ideas. Repetition creates space for experiments, coincidences and unexpected discoveries.

The exhibition brings together eight artists working across a diverse range of media, materials and techniques. Their practices draw on personal experiences, memories, self-image, gender roles, nature and imagination. Everyday observations, relationships with their surroundings and the exploration of new possibilities in material and form intertwine throughout their artistic approaches. Diverse methods converge in a curiosity-driven search for what may emerge within the act of creation itself.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page