top of page

Skriðuklaustur - Opið fyrir umsóknir 2025

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. maí 2024

Skriðuklaustur - Opið fyrir umsóknir 2025

Gunnarsstofnun auglýsir eftir umsóknum um dvöl í Klaustrinu árið 2025. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2023.

Við úthlutun Klaustursins árið 2025 munu tveir ferða- og dvalarstyrkir frá Menningarsjóði Gunnarsstofnunar fylgja mánaðardvöl á Skriðuklaustri. Markmiðið með styrkveitingunni er að styðja sérstaklega við rannsóknarverkefni tengd Austurlandi og störf rithöfunda af erlendum uppruna sem búa og starfa á Íslandi.

KLAUSTRIÐ er dvalarstaður fyrir innlenda og erlenda lista- og fræðimenn, rithöfunda, þýðendur og tónskáld. Dvalargestir fá til endurgjaldslausra afnota litla íbúð í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri um 3-6 vikna skeið til
að vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum. Samkvæmt reglum um úthlutun skulu verkefni er varða Gunnar Gunnarsson, Austurland eða austfirsk fræði njóta forgangs.

Sækja skal um dvöl í Klaustrinu á þar til gerðu eyðublaði og senda það í pósti, tölvupósti til Gunnarsstofnunar. Í umsókn þarf að koma fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og umsóknareyðublað á vefslóðinni www.skriduklaustur.is. Umsóknareyðublað er einnig að finna á google forms, https://forms.gle/ib1vXbVbom383Bd58

Senda skal fyrirspurnir eða umsóknir á Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri, 701 Egilsstaðir eða á netfangið klaustur@skriduklaustur.is.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page