top of page

Skriðuklaustur: Umsókn um dvöl í gestaíbúð

508A4884.JPG

miðvikudagur, 8. júní 2022

Skriðuklaustur: Umsókn um dvöl í gestaíbúð

Gunnarsstofnun auglýsir eftir umsóknum um dvöl í Klaustrinu árið 2023

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2022


KLAUSTRIÐ er dvalarstaður fyrir innlenda og erlenda lista- og
fræðimenn, rithöfunda, þýðendur og tónskáld. Dvalargestir fá til
endurgjaldslausra afnota litla íbúð í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri um
3-6 vikna skeið til að vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum. Samkvæmt
reglum um úthlutun skulu verkefni er varða Gunnar Gunnarsson,
Austurland eða austfirsk fræði njóta forgangs.

Sækja skal um dvöl í Klaustrinu á þar til gerðu eyðublaði og senda það
í pósti eða tölvupósti til Gunnarsstofnunar. Í umsókn þarf að koma
fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi
hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og umsóknareyðublað á
vefslóðinni www.skriduklaustur.is

Senda skal fyrirspurnir eða umsóknir á Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri,
701 Egilsstaðir eða á netfangið klaustur@skriduklaustur.is.


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page