top of page

Skaftfell: Lines of Flight / Hársbreidd - Nína Magnúsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 25. nóvember 2022

Skaftfell: Lines of Flight / Hársbreidd - Nína Magnúsdóttir

(English below)

Verið hjartanlega velkomin á opnun vetrarsýningar Skaftfells:

Nína Magnúsdóttir: Lines of Flight / Hársbreidd
26. nóvember 2022 – 29. janúar 2023
Skaftfell sýningarsal, Austurvegur 42, Seyðisfjörður

Opnun: 26. nóvember, 2022, kl. 16:00-18:00
Opnunartími: Þriðjudaga til sunnudaga kl.17:00-22:00, lokað mánudaga

Rúmlega 20 ný verk eftir Nínu Magnúsdóttur sem búsett er á Seyðisfirði, verða sýnd á sýningu sem ber yfirskriftina Hársbreidd og verður opin í sýningarsal Skaftfells frá 26. nóvember 2022 til 29. janúar 2023.
Verkin voru gerð í kjölfar aurskriðanna í desember 2020 sem leiddu til tímabundinnar rýmingar Seyðisfjarðar. Listakonan og fjölskylda hennar gátu ekki snúið aftur til heimilis síns og vinnustofu í nokkra mánuði og dvöldu í bryggjuhúsi Roth fjölskyldunnar á Seyðisfirði. Þetta tímabil neyðarflutninga var tími uppgjörs og leitar að stöðugleika á óvissutímum.
Ólíkt fyrri verkum hennar í málaralist og öðrum miðlum, notar Nína hár sem efnivið í nýjustu verkum sínum; aðferð sem þróaðist áreynslulaust út frá hugmyndinni um hár sem hluta af líkamanum en einnig efni sem er aðskilið honum. Líkt og aðrar lífrænar trefjar eins og ull eða silki, hefur hár innri uppbyggingu sem tengist hverjum einstökum uppruna. Við gerð verkanna tóku hinir hárfínu þræðirnir á sig karakter línuteikninga. Sum verkanna sýna þrívíðar “línur” hársins á móti grófu, hvítu yfirborði, á meðan önnur nota liti í óhlutbundnum blæbrigðum sem leika sér með spennuna milli jákvæðs og neikvæðs rýmis.
Ferlið við gerð verkanna fól í sér samspil mynstranna sem myndast af þráðunum og fíngerðrar meðhöndlunar listamannsins á þeim: tilviljun og vilji mætast á yfirborði strigans. Nína bendir á: “Þetta snýst ekki um að beita hugmyndafræðinni og þvinga hárið undir mína stjórn; heldur frekar að koma einhvers konar reglu á ringulreiðinni og kanna nýja tegund af formi.”
Í gegnum söguna hefur hár haft menningarlega og táknræna þýðingu í bókmenntum, goðafræði, þjóðsögum, myndlist og dægurmenningu. Í vestrænum sið hefur hár tengst kvenlegri fegurð, munúð og krafti. Það felur í sér nánd og er persónulegt en er jafnframt opinbert og pólitískt.

Um listamanninn
Nína Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í myndlist við Goldsmiths College í London. Verk hennar hafa verið sýnd á Íslandi og um alla Evrópu, þar á meðal sameiginlega innsetningin Sirkus, sem sett var upp á Frieze Art Fair í London 2008. Fyrir utan listiðkun sína hefur Nína staðið fyrir fjölda sýninga, þar á meðal íslenska skálanum á 56. Feneyjatvíæringnum árið 2015, með verkinu MOSKAN – Fyrsta moskan í Feneyjum, eftir svissneska listamanninn Christoph Büchel. Á árunum 2006-09 starfaði Nina sem framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins í Reykjavík. Hún var meðstofnandi listamannarekna gallerísins Kling og Bang frá 2003-09 og forstöðumaður afleggjara þess, Klink og Bank frá 2004-05. Hún hefur starfað sem kennslustjóri LungA skólans og situr nú í stjórn Skaftfells á Seyðisfirði.

Sýningin er styrkt af Múlaþingi, Sóknaráætlun Austurlands og Stjórnarráði Íslands.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------

Skaftfell is pleased to announce its winter exhibition:

Nína Mágnúsdóttir: Lines of Flight / Hársbreidd
November 26, 2022 – January 29, 2023
Skaftfell Gallery, Austurvegur 42, Seyðisfjörður
Opening: November 26, 2022, 16:00-18:00
Opening hours: Tuesday to Sunday, 17:00-22:00, closed on Mondays

More than 20 new works by Seyðisfjörður-based artist Nína Magnúsdóttir will be presented in an exhibition entitled Lines of Flight, on view in the Skaftfell Gallery from November 26, 2022 to January 29, 2023.
The new works were made in the aftermath of the devastating landslides of December 2020, that led to the temporary evacuation of the town. Unable to return to their home and studio for several months, the artist and her family stayed in the Roth family’s pier house located at the threshold of the fjord. This period of displacement was a time of reckoning and of seeking stability at an uncertain time.
In a departure from her past work in painting and other media, Nína’s new works incorporate hair as material, an element that evolved intuitively in thinking about hair as something of her body and also separate from it. Like other organic fibers, such as wool or silk, hair has an inherent structure specific to the individual source. In composing the canvases, tendrils of hair took on the character of line drawings. Some of the works show the three-dimensional “lines” of hair against a stark, white surface, while others use color in all-over abstract compositions that play with the tensions between positive and negative space.
The process of making the works involved an interplay between the patterns formed by the sinuous strands and the artist’s subtle manipulations of them: a meeting of chance and will on the canvas surface. Nína has noted: “It is not about applying a concept and forcing the hair under my direction; it is more about making some kind of order out of chaos and exploring a new kind of form.”
Throughout history, hair has held cultural and symbolic significance in literature, mythology, folklore, visual art, and popular culture. female beauty and power. In the Western tradition, hair has connotations of female beauty, sensuality, and power. It is personal and intimate, but also public and political.

About the artist
Nína Magnúsdóttir was born in Reykjavík. She has an undergraduate degree in visual art from Listaháskoli Íslands and a postgraduate degree in visual art from Goldsmiths College, London. Her work has been exhibited in Iceland and throughout Europe, including the collective installation project Sirkus, shown at the 2008 Frieze Art Fair in London. In addition to her artistic practice Nína has curated numerous exhibitions, notably the Icelandic Pavilion of the 56th Venice Biennale, Venice, in 2015, with The Mosque, by the Swiss artist Christoph Büchel. From 2006-09, Nina served as the executive director of Nýlistasafn (The Living Art Museum), in Reykjavík. She was a co-founder of the artist-run gallery Kling og Bang from 2003-09, and the director of its offshoot, Klink and Bank from 2004-05. She has been a program director of the LungA School, and presently serves on the board of Skaftfell, in Seyðisfjörður.

The exhibition is funded by Múlaþing, Sóknaráætlun Austurlands, and Stjórnarráð Íslands.



Austurvegur 42 | 710 Seyðisfjörður | Iceland | Sími / Tel. (+354) 472 1632
www.skaftfell.is | skaftfell@skaftfell.is | Opnunartímar | Opening hours

Copyright © 2022 Skaftfell, All rights reserved.

















Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page