top of page

Skaftfell: Alter I Breyta - Brák Jónsdóttir, Hugo Llanes, Joe Keys og Nína Óskarsdóttir

508A4884.JPG

miðvikudagur, 30. mars 2022

Skaftfell: Alter I Breyta - Brák Jónsdóttir, Hugo Llanes, Joe Keys og Nína Óskarsdóttir

Alter I Breyta er samsýning myndlistarmannanna Brák Jónsdóttur - Hugo Llanes - Joe Keys - Nínu Óskarsdóttur

Sýningin stendur til 22. maí, 2022.
Opnunartími:
Mán-fös kl. 12-20
Helgar kl. 17-20
Gengið í gegnum bistróið á fyrstu hæð.

Sýningin Alter / Breyta er samsýning fjögurra upprennandi myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlega lokið námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn var valinn í samvinnu með Bjarka Bragasyni, deildarforseta Myndlistardeildar LHÍ, og boðið að dvelja í þriggja vikna vinnustofudvöl í Skaftfelli þar sem þau fengu næði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna öll með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu á milli verka þeirra.
Einhvers konar umbreyting hefur átt sér stað eða er gerð að útgangspunkti eða viðfangsefni á sýningunni. Ólíkum efniviði og hugmyndum er hnikað til: Hæglátt og lágstemmt ferlið, natnin og endurtekningin sem umbreytir hversdagslegum hlutum þegar þeir eru teknir úr fyrra samhengi og taka á sig nýja mynd.

Æviágrip:

Brák Jónsdóttir (f. 1996) útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks, bókverks, skúlptúrs og gjörnings, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskjunnar við náttúruna. Í ferlinu kannar Brák lífsform og lífverur. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni, fantasíu og femínisma. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar, náttúrulegra og manngerðra efna.

Hugo Llanes (f. 1990 í Xalapa, Veracruz í Mexíkó) býr og starfar í Reykjavík og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Hugo vinnur með pólitíska og félagslega bresti og fagurfræðina sem af því sprettur. Verk hans eru í formi málverka, ætilegra verka, innsetninga, rýmistengdra verka og staðbundinna gjörninga. Með verkum sínum skoðar hann félagslegar aðstæður, s.s. flutning fólks á milli landa, valdbeitingu og áhrifa síðnýlendustefnunar á þróun sjálfsmyndar Rómönsku Ameríku, stöðu sjálfstæðrar þjóðar, annarleika og pólitíska andspyrnu, auk þess sem hann vinnur með þema matar sem ádeilu á félagsleg vandamál og skoðar hvaða þýðingu upplifun okkar í gegnum matargerð hefur. Með ljóðrænni framsetningu verka sinni sér hann fram á mögulegan vettvang til að kryfja til mergjar þessi samofnu flóknu og krefjandi viðhorf. Með viðhorfi sínu um að persónulegt míkrókerfi sé varnarlaust gagnvart hinu hnattræna reynir Hugo með framsetningu sinni að hvetja áhorfandann til þátttöku og íhugunar.
www.cargocollective.com/hugollanes

Joe Keys (f. 1995 í Newcastle, Englandi) hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2018 og útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Joe vinnur aðallega með fundið efni í formi skúlptúra og prentverka. Verkin hans endurspegla kerfi úr daglegu lífi með þurri kímnigáfu og hugleiðingar um hluti sem við vanmetum og látum alla jafna framhjá okkur fara. Joe starfar sem umsjónarmaður prentverkstæðis í Listaháskóla Íslands og er félagi í samrekna prentverkstæðinu Prent & vinir í Laugardal, Reykjavík.
www.joekeys.com

Nína Óskarsdóttir (f. 1986) útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt í myndlist 2014. Nína vinnur með skúlptúr og innsetningar og verk hennar einkennast af efniskennd sinni. Hún notar efni á borð við leir, textíl og ljós sem kallast á við hverfulan efnivið á borð við vatn, eld eða matvæli. Nína vinnur með óefnisbundnar hugmyndir, svo sem heilagleika, minningar og sjálfsmynd, og gerir tilraunir til að koma þeim í efnislega mynd. Nína hefur tekið þátt í fjölda sýningarverkefna bæði hérlendis og í Evrópu sem og unnið að listrannsóknum sínum í gegn um vinnustofudvalir og rannsóknarstyrki.
ninaoskrarsdottir.com

Sýningarstjóri og texti: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir
https://skaftfell.is/syningin-alter-breyta-opnar-laugardaginn-26-mars-kl-1600/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page