top of page

Skáldasuð – ljóða – og listahátíð á Suðurnesjum

508A4884.JPG

fimmtudagur, 6. mars 2025

Skáldasuð – ljóða – og listahátíð á Suðurnesjum

Skáldasuð er haldin í annað sinn í ár en það er ný ljóða – og listahátíð sem var fyrst haldin í fyrra suður með sjó. Hátíðin verður í Bíósal í Duushúsum í Reykjanesbæ dagana 6. - 23. mars næstkomandi. Þessi litla lista- og ljóðahátíð er hugarfóstur myndlistarmannsins Gunnhildar Þórðardóttur sem er einnig ljóðskáld. Hátíðin hefst fimmtudag 6. mars kl. 17 með opnun á sýningunni Orð eru til alls fyrst með myndverkum eftir Jónu Hlíf Halldórsdóttur, Hönnu frá Jaðri, Samfélag fyrir öll (sjálfstætt verkefni Vena Naskrecka með Rauða krossinum), Anton Helga Jónsson, Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur, Sossu og Gunnhildi Þórðardóttur. Verkin á sýningunni tengjast öll texta á einn eða annan hátt og eru bæði tví – og þrívíð verk.

Sama kvöld hefst fyrri ljóðaupplestur Skáldasuðs eftir opnun en þar munu koma fram skáldin Kristrún Guðmundsdóttir, Anton Helgi Jónsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Draumey Aradóttir og Sigurlín Bjarney Gísladóttir.

Á seinna upplestrarkvöldinu 13. mars næstkomandi kl.17 munu ljóðaskáldin Elías Knörr, Gunnhildur Þórðardóttir, Ægir Þór Jahnke, Valdimar Tómasson og Sigurbjörg Þrastardóttir stíga á stokk sem fyrr mun upplesturinn fara fram í Bíósal Duushúsa.

Laugardag 15. mars kl.12-14 verður svo haldin ljóðasmiðja fyrir börn og ungmenni með Gunnhildi Þórðardóttur en hátíðin er hugsuð fyrir börn jafnt sem fullorðna. Ljóðin úr smiðjunni verða til sýnis á BAUN barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ sem verður haldin í apríl – maí í Listasafni Reykjanesbæjar.

Á meðan á hátíðinni stendur verða til sýnis ljóð í leiðinni í Sundlaug Keflavíkur, Vatnaveröld, Ljósaljóð í strætóskýlum bæjarins og ljóðalabb þ.e. ljóð á ýmsum gönguleiðum um bæinn. Þar munu koma fram ljóðskáldin Garðar Baldvinsson aka Garibaldi, Guðmundur Magnússon, Ragnheiður Lárusdóttir, Guðmundur Brynjólfsson, Eygló Jónsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir. Þá mun verkefnastjóri vera með örljóðaupplestur í heitum pottum daga 7. og 21. mars.

Gunnhildur Þórðardóttir er með MA í liststjórnun (2006), tvíhliða BA nám sagnfræði (listasögu) og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge UK (2003) og viðbótardiplómanám í listkennslu bæði fyrir grunn - og framhaldsskóla frá Listaháskóla Íslands (2019). Hún hefur starfað við kennslu síðan 2014 og starfað í rúm tíu ár fyrir listasöfn bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður í tuttugu ár og unnið trúnaðarstörf fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og félagið Íslensk grafík.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page