top of page

Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. desember 2023

Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi

Listasafn Íslands gefur út fræðsluefnið Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi .

Efnið hefur verið aðgengilegt á rafrænu formi síðastliðið ár og verið í notkun í safnfræðslu og meðal kennara í skólum landsins við góðar undirtektir. Sjónarafl er byggt á þróunarverkefni sem fræðsludeild Listasafns Íslands hefur unnið að síðastliðin fjögur ár. Sjónarafl miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi þjóðarinnar. Þjálfun í myndlæsi eykur einnig hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun.

Höfundar: Ragnheiður Vignisdóttir, Marta María Jónsdóttir og Hólmar Hólm

Hér er hægt að nálgast bókina í vefverslun: https://listasafn-islands.myshopify.com/collections/allar-vorur/products/sjonarafl

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page